Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2009, Blaðsíða 10

Skinfaxi - 01.05.2009, Blaðsíða 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Akureyri Frábærar aðstæður „Undirbúningur fyrir Landsmótið hefur gengið í meginatriðum mjög vel og er á áætlun. Fjármögnun öll gekk sömuleiðis með ágætum þrátt fyrir árferðið sem við búum við í þjóðfélaginu í dag. Eins og flestir hafa séð hafa staðið yfir geysilega miklar framkvæmdir í byggingu stúku og frjálsíþróttavallar. Þegar öllu verður lokið verða aðstæður hér fyrir norðan frábærar og allt umhverfið í kring glæsilegt á allan máta,“ sagði Sigurður H. Kristjánsson, for- maður Ungmennasambands Eyjafjarðar, UMSE, í samtali við Skinfaxa. Stökk inn í nýja tíma Sigurður sagði um hreina byltingu að ræða þegar horft væri til aðstöðunnar sem væri verið að byggja upp. „Þetta er mikil lyftistöng sem á eftir að verða öllu íþróttalífi hér á Akureyri til framdráttar. Við vorum búin að bíða lengi eftir því að þessi aðstaða yrði að veruleika og það er stórkostlegt að sjá hana verða til. Fyrir íþróttafólkið er þetta stökk inn í nýja tíma. Við höfum átt gott samstarf við UFA í frjálsum íþróttum og keppt saman á meistaramótum og ég held að þessi uppbygging eigi bara eftir að efla það samstarf. Ég yrði ekki hissa á því þótt áhugi á frjálsum íþróttum ætti eftir að aukast en reyndar hafa frjálsar íþróttir verið í afar mikilli sókn hér fyrir Uppbyggingin mikil lyftistöng fyrir íþróttalífið á Akureyri Sigurður H. Krist jánsson, formaður UMSE: norðan á síðustu árum. Það hafa verið að koma fram gríðarlega sterkir íþrótta- menn, ungir krakkar sem eiga mikla framtíð fyrir sér. Nýja aðstaðan á eftir að verða mikil hvatning fyrir ungviðið hér á Akureyri,“ sagði Sigurður. Við reiknum með miklum fjölda fólks – Ertu ekki bjartsýnn á gott Landsmót? „Landsmótið hefur alla burði til þess. Við reiknum með miklum fjölda fólks hingað norður í tengslum við mótið. Ástandið er þannig í þjóðfélaginu að fólk mun fara lítið utan í sumar og verður þess í stað meira á ferðinni innanlands. Það mun því sækja viðburði sem í boði verða og ég er viss um að Landsmótið verður ofarlega í huga fólks. Það er alveg ljóst að fjölskyldan getur átt hér frábæra daga saman.“ Fjölbreytt dagskrá Sigurður sagði dagskrána mjög fjöl- breytta. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi og alveg kjörið fyrir fólk að skella sér til Akureyrar og njóta þess sem í boði verður landsmótsdagana. Hann sagði að mótshaldarar hefðu átt gott samstarf við Akureyrarbæ við að gera mótið sem veglegast. Hann sagði að búið væri að tvöfalda tjaldsvæðið og að þar yrði öll aðstaða til fyrirmyndar. Hugur í öllum „Það er gríðarlegur hugur í öllum sem koma að undirbúningi mótsins. Það er mikil tilhlökkun meðal allra og ég viss að keppendur og gestir eiga eftir að eiga hér góða daga saman,“ sagði Sigurður. Sigurður H. Kristjánsson, formaður UMSE. Starfsfólk Landsmótsins á Akureyri Efri röð frá vinstri: Ómar Bragi Stefánsson framkvæmdastjóri og Óskar Þór Halldórsson verkefnastjóri. Neðri röð frá vinstri: Sonja Gústavsdóttir og Hans Jakob Pálsson.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.