Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.2009, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.11.2009, Blaðsíða 3
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 3 Síðustu tvö ár hafa verið samfelld afmælisveisla hjá UMFÍ. Við höfum haldið upp á aldarafmæli hreyfingarinnar og Landsmótanna og nú er komið að Skin- faxa. Frá því að fyrsta blaðið var gefið út í október 1909 hefur það komið út óslitið, ekki fallið út einn árgangur, sem að öll- um líkindum er einsdæmi í tímarita- útgáfu á Íslandi. Nafn Skinfaxa er sótt í norræna goða- fræði og dregur blaðið nafn sitt af hestin- um Skinfaxa sem dró vagn goðsagna- verunnar Dags. Hesturinn Skinfaxi var fagur og með skínandi fax sem lýsti upp himinhvolfið og jörðina. Segja má að nafngiftin sé tignarleg og hæfi blaðinu vel því hróður Skinfaxa hefur borist víða og hann skín og hefur skinið skært. Frá upphafi hefur Skinfaxi verið öflug- ur málsvari ungmennafélagshreyfingar- innar, sambandsaðilanna og heildarsam- takanna. Markmiðið með útgáfu hans hef- ur verið óbreytt í hundrað ár: Að segja fréttir og vera með frásagnir úr starfi ung- mennafélaga og af þeim verkefnum sem heildarsamtökin hafa haft forystu um eða unnið í samstarfi við aðra. Að tengja félög- in saman þannig að þau myndi eina sterka heild og styrkja og hvetja sambandsaðila til dáða. Að vera með leiðbeiningar um starfið, vekja samhug og opna augu les- enda fyrir öllu því sem skiptir máli hverju sinni og því sem er fagurt og gott. Þessum markmiðum hafa þeir sem stýrt hafa blaðinu hverju sinni verið trygg- ir og stjórnendur UMFÍ hafa lagt áherslu á að halda blaðinu lifandi. Þannig hefur blaðið oft tekið stakkaskiptum hvað útlit og efnisinnihald varðar og hin síðari ár hefur blaðið einnig verið aðgengilegt á heimasíðu UMFÍ. Stjórn UMFÍ hefur ákveðið að í tilefni af afmælinu verði farið í samstarf við Landsbókasafn Íslands – Háskólabóka- safn um að skanna inn öll tölublöð Skin- Lýsir upp himin og jörð Helga Guðrún Guðjónsdótt ir, formaður UMFÍ: faxa og í framtíðinni verða safninu send öll tölublöð blaðsins á pdf-formi. Þannig varðveitum við þennan sögulega fjársjóð ungmennafélagshreyfingarinnar um leið og við bætum aðgang fólks að þeim fróðleik sem þetta málgagn hreyfingar- innar flytur hverju sinni og gildi hans fyrir land og lýð. Þetta er afmælisgjöf hreyfingarinnar til blaðsins og um leið þakklætisvottur og yfirlýsing um hve stolt við erum af blaðinu OKKAR. Ég tel að Skinfaxi sé eitt besta tímaritið sem fjallar um íþrótta- og æskulýðsmál á Íslandi í dag. Ritstjórinn, Jón Kristján Sigurðsson, vinnur mjög gott starf sem sýnir sig í góðu blaði, bæði hvað útlit og innihald varðar. Hefur honum, ásamt rit- nefndum undanfarinna ára, tekist að gera blaðið áhugavert aflestrar og því er dreift víða þannig að margir njóta. Vil ég nota þetta tækifæri og þakka ritstjóra, ritnefnd og öðrum sem koma að blaðinu kærlega fyrir frábært blað um leið og ég óska okkur öllum til hamingju með 100 ára afmæli þess með óskum um að Skin- faxi haldi áfram að lýsa upp himin og jörð. Íslandi allt! Helga Guðrún Guðjónsdóttir formaður UMFÍ Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ. Skinfaxi 100 1909–2009 ára Kynningarfundur um KOMPÁS – hand- bók í mannréttindafræðslu – var haldinn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu 9. desember sl. Mennta- og menningar- málaráðuneyti og Námsgagnastofnun hafa látið þýða og gefa út á íslensku bók- ina KOMPÁS, en hún kom fyrst út hjá Viljayfirlýsing um samstarf undirrituð Evrópuráðinu árið 2002. Hér er um að ræða handbók í mannréttindafræðslu sem er ætluð þeim sem starfa í skólum eða með börnum og unglingum á vett- vangi félags-, æskulýðs- og tómstunda- starfs. Bókin nýtist bæði fagfólki, forystu- fólki í félagsstarfi og sjálfboðaliðum. Í handbókinni er að finna raunhæfar hug- myndir og hagnýt verkefni sem ætlað er að virkja og vekja jákvæða vitund ungs fólks um mannréttindi. Áhersla er á mark- mið sem snúa að þekkingu og skilningi, færni, viðhorfum og gildum. Kompás er nú til á 28 tungumálum og eru flestar útgáfurnar aðgengilegar á vefnum sem þýðir að þegar unnið er í fjölþjóðlegu samhengi á íslenskum vettvangi getur hver þátttakandi fengið verkefnin á sínu tungumáli. Hér er því á ferðinni verkfæri sem nýtist öllum þeim sem vilja efla vit- und um mannréttindi og er fólk hvatt til að kynna sér efni bókarinnar frekar. Við þetta sama tækifæri undirritaði mennta- menningarmálaráðherra, Katrín Jakobs- dóttir. viljayfirlýsingu um samstarf mennta- og menningarmálaráðuneytis við Háskólann á Akureyri, Akureyrarbæ, Rauða Kross Íslands og Ungmennafélag Íslands, um að efla lýðræði og mann-rét- tindi í skólum og í félags- og æskulýðs- starfi. Katrín Jakobsdóttir mennta– og menn- ingarmálaráðherra ásamt fulltrúum sem koma að sam- starfinu um að efla lýðræði og mann- réttindi í skólum og félags- og æsku- lýðsstarfi.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.