Skinfaxi - 01.11.2009, Blaðsíða 33
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 33
Íslensk knattspyrna
Íslensk knattspyrna 2009 er 29. bókin
frá upphafi en sú fyrsta kom út árið 1981.
Það var Sigurður Sverrisson, þáverandi
íþróttafréttamaður, sem skrifaði hana.
Víðir Sigurðsson kom honum til aðstoðar
og þeir skrifuðu bókina árið 1982 í sam-
einingu en Víðir hefur skrifað bækurnar
samfleytt frá árinu 1983.
Í bókunum er að finna nánast allt sem
gerist í íslenskum fótbolta á hverju ári. Þar
er fjallað ítarlega um efstu deildir karla og
kvenna, hvern leik fyrir sig, upplýsingar er
að finna um alla leikmenn og alls kyns
fróðleik um keppnina, liðin og leikmenn-
ina. Neðri deildunum eru líka gerð góð
skil, meira að segja utandeildakeppninni.
Svo eru lifandi frásagnir af öllum lands-
leikjum allra aldursflokka, farið yfir alla
íslensku atvinnumennina erlendis og
hvað þeir hafa gert á viðkomandi ári, fjall-
að um Evrópuleiki félagsliða, og svo öll
hin mótin, Bikarkeppnina, deildabikar-
inn og annað sem gerist utan hins hefð-
bundna keppnistímabils.
Umfjöllun um yngri flokka er mikil í
bókunum. Fjallað er um úrslitaleiki í öll-
um flokkum á Íslandsmótinu, úrslit allra
leikja eru til staðar og mikið af myndum
LEIGJUM ÚT OG ÞJÓNUSTUM VATNSSALERNI
á íþróttamót og hverskyns mannam ót
Borgarflöt 15 :: 550 Sauðárkrókur
Sími: 891 9181 :: Fax: 453 5778
Netfang: okgam@simnet.is
NÝ
PR
EN
T
frá hinum ýmsu drengja- og stúlknamót-
um sem haldin eru víða um land.
Það hefur komið á daginn í seinni tíð
hve dýrmætar heimildir eru t.d. fólgnar í
myndunum af meistaraliðum yngri flokk-
anna sem hafa frá fyrstu tíð verið í bók-
inni. Fólk skoðar mikið þessar myndir í
eldri bókunum og skemmtir sér við að
finna þar fjölmarga fyrrum fótboltamenn
og konur sem hafa haslað sér völl á ýms-
um sviðum þjóðlífsins, 10, 15, 20 eða 25
árum síðar.
Bók ársins 1984 hafði verið uppseld
árum saman þegar bókaútgáfan Tindur
ákvað að endurprenta hana fyrr á þessu
ári. Það er fyrsta bókin í flokknum sem er
endurprentuð.
Myndirnar frá íslenskri knattspyrnu,
sem birst hafa í bókunum frá upphafi, eru
í kringum 7.000 og þarf ekki að fara mörg-
um orðum um það hversu gífurlegt
heimildargildi þær hafa um allt það sem
hefur gerst í fótboltanum hér á landi
síðustu þrjá áratugina.
Í nýju bókinni eru viðtöl við Atla Guðna-
son, Sif Atladóttur, Ólaf Jóhannesson
landsliðsþjálfara og Sigurð Ragnar Eyjólfs-
son, þjálfara íslenska kvennalandsliðsins.