Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.2009, Page 20

Skinfaxi - 01.11.2009, Page 20
20 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Skammt er stórra högga á milli hjá Ungmennafélagi Íslands. Minnst var ald- arafmælis samtakanna árið 2007 með ýmsum hætti og í sumar voru liðin 100 ár frá fyrsta Landsmóti UMFÍ og þess minnst með glæsilegum hætti á Akureyri. Ekki er hægt annað en að vera stoltur af því hve vel tókst til þar á allan hátt og verður þessa móts minnst um ókomna tíð fyrir glæsileika og gott skipulag. Nú er komið að Skinfaxa, tímariti Ung- mennafélags Íslands, en í ár er liðin öld frá því að blaðið hóf göngu sína. Ég minn- ist Skinfaxa frá barnæsku, en faðir minn keypti að sjálfsögðu blaðið því hann var alla sína ævi dyggur og trúr ungmenna- félagshreyfingunni. Hann ól okkur upp í þeirri hugsjón og Skinfaxi var hluti af ungmennafélagsuppeldinu. Það var mikill áfangi í lífi okkar krakk- anna í sveitinni þegar við höfðum aldur til að ganga í ungmennafélagið og verða virkir félagar en þá þurftum við að vera orðin 10 ára. Eins og ég gat um hér að framan kom Skinfaxi inn á æskuheimili mitt, en síðan þá hefur hann tekið miklum breytingum til betri vegar, enda tæknin önnur og blaðið mun líflegra og höfðar betur til ungu kynslóðarinnar en áður og er það vel. Blaðið hefur verið í stöðugri þróun til betri vegar á umliðnum árum og það er trú mín að svo muni verða áfram því það hefur sýnt sig að metnaðarfullt starf er unnið við útgáfu Skinfaxa. Á þeim árum sem ég sat í stjórn UMFÍ held ég að ekki hafi verið haldinn stjórnar- fundur án þess að eytt hafi verið löngum tíma í umræður um útgáfu og rekstur Skinfaxa. Víst er að oft var reksturinn þungur og mikið kapp lagt á að bæta hann, en oft þurfti að leggja einhverjar krónur með og aldrei sá ég eftir þeim krónum. Þeim var vel varið því blaðið á að vera rödd hreyfingarinnar. Fyrrverandi formenn UMFÍ Björn Bjarndal Jónsson, formaður UMFÍ 2001–2007: Við erum stolt af blaðinu okkar Þegar ákveðnum áfanga er náð í lífinu er hollt að setjast niður og líta yfir farinn veg. Ungmennafélagshreyfingin er orðin hundrað ára og gott betur. Það er ánægju- legt að landshreyfing á borð við Ung- mennafélag Íslands skuli hafa náð svo háum aldri. Á Íslandi hafa átt sér stað á þessu tímabili ýmsar uppákomur sem ætla má að hefðu dugað einar og sér til að slá ungmennafélaga út af laginu svo að þeir gæfust upp. Má þar nefna krepp- una (hina fyrri), erfið ár vegna kulda, fyrri og seinni heimsstyrjöldina og fólksflótta úr sveitum. Líka er hægt að telja upp tækifærin sem við Íslendingar höfum fengið og fljótt á litið hefðu líka getað slegið okkur út af laginu. Þar er ég að tala um tæknibyltingu fyrri aldar og síðan tímabil ofsagróða og stórra tækifæra. Nei, hvorki uppsveiflur eða samdráttur í þjóðfélaginu hafa komið í veg fyrir blóm- legt starf ungmennafélaga. En þá spyr maður sig hvað hreyfingin hafi haft fram yfir fyrirtæki, stofnanir og önnur félög og samtök sem hafa komið og farið. Einhver kjölfesta hlýtur að hafa verið til staðar hjá okkur sem hefur gert ungmennafélags- hreyfinguna 100 ára. Er ekki hugsanlegt að stöðug blaðaútgáfa í hundrað ár hafi fært okkur gæfu til langlífis? Það er mat þess sem ritar þessa grein að Skinfaxi hafi fært okkur þá festu og trú á okkur sjálf sem hafi dugað til að halda ungmennafélagshreyfingunni gangandi í öll þessi ár. Skinfaxi hefur fært ung- mennafélögum fréttir úr starfinu, blásið okkur sóknarhug í brjóst eftir lestur greina sem eldhugar hvers tíma hafa skrifað, auk- ið stolt okkar með umfjöllun blaðsins um afreksfólkið, fært okkur nær hvert öðru með upplýsingum um almennt starf í hreyfingunni og svo mætti lengi telja. Það má öllum ljóst vera að það afl sem Skinfaxi hefur borið með sér, ekki síst á erfiðum tímum, hefur fært aukinn kraft í ungmennafélagsstarfið. Við erum stolt af blaðinu okkar. Þegar flett er hundrað árgöngum af Skinfaxa er verið að fletta sögu UMFÍ um leið. Þar er sagan skráð frá ári til árs sem enginn get- ur skráð betur en þar stendur. Ég vil nota þetta tækifæri og óska okk- ur til hamingju með 100 ára afmæli Skin- faxa. Hamingjuóskir mínar eru ekki síst til þeirra sem standa að útgáfu blaðsins í dag. Ég sé ekki hvernig hægt væri að gera betur. Íslandi allt! Björn Bjarndal Jónsson Ég geri ráð fyrir að enn þurfi að leggja nokkuð á sig til að ná endum saman í rekstrinum. En við skulum ekki hafa áhyggjur því vel er unnið að útgáfunni. Í dag er blaðið glæsilegt, vel unnið og vandað á allan hátt, vel læsilegt fyrir jafnt unga sem aldna, allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi í því. Ég er stoltur af blaðinu og hvet ritstjóra og ritstjórn Skinfaxa ásamt stjórn UMFÍ til að halda áfram á sömu braut, að bæta blaðið og styrkja það á allan hátt. Að lokum vil ég óska Ungmennafélagi Íslands til hamingju með þann árangur að ná því að gefa tímarit sitt út í 100 ár samfellt og það er von mín að hið síunga blað fylgi ungmennafélagshreyfingunni og kynni málstað hennar um ókomna tíð og vinni æskunni til heilla. Íslandi allt! Þórir Jónsson Þórir Jónsson, formaður UMFÍ 1993–2001: Minnist Skinfaxa frá barnæsku Skinfaxi 100 1909–2009 ára Skinfaxi 100 1909–2009 ára Lindi ehf. TRADE MARK Ketilsbraut 13 640 Húsavík

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.