Skinfaxi - 01.11.2009, Blaðsíða 31
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 31
Gönguverkefni UMFÍ – Fjölskyldan á fjallið
Gönguverkefni Ungmenna-
félags Íslands og sambands-
aðila, Fjölskyldan á fjallið,
tókst með afbrigðum vel í ár.
Eins og undanfarin ár
tilnefndi Héraðssam-
bandið Skarphéðinn tvö
fjöll til að ganga á í sumar.
Annars vegar var það Mosfell
í Grímsnesi og hins vegar Hvolsfjall
við Hvolsvöll.
Alls gengu tæplega eitt þúsund manns
á þessi fjöll og hefur þátttakan aldrei verið
meiri. Bæði eru fjöllin frekar auðveld upp-
göngu og má vafalaust þakka því þessa
góðu þáttöku að einhverju leyti.
Í gestabækur, sem komið er fyrir á tind-
um fjallanna, rita göngugarpar
nafn sitt og margir hverjir síma-
númer. Á haustin er síðan dregið
út eitt nafn í hvorri gestabók og
hlýtur sá heppni viðurkenningu
frá HSK og UMFÍ.
Í ár voru dregin út þau Nathan
Freyr Morthens frá Sauðárkróki og
Guðrún Sveinsdóttir sem dvelur á
dvalarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli.
Nathan Freyr er 10 ára og Guðrún er 92
ára. Það er ekkert kynslóðabil í þessu
verkefni. Guðrún gekk ekki einu sinni á
Hvolsfjall heldur hvorki í fleiri né færri en
í 44 skipti. Hér er örugglega um að ræða
nýtt HSK-met í fjölda gönguferða, auk
þess að ekki er líklegt að margir yfir níræðu
hafi tekið þátt í þessu góða verkefni.
Guðrún er góð fyrirmynd annarra eldri
borgara og ættu sem flestir að nota gott
veður yfir sumartímann og að hausti til
að njóta íslenskrar náttúru. Guðrúnu var
afhent viðurkenning fyrir skemmstu og
var hún hin hressasta.
„Ég hef frá því að ég var krakki alltaf
verið dugleg að ganga. Það þekktist ekk-
ert annað í þá daga en að ganga á milli
staða því þá var ekki mikið um farartæki.
Þessi hreyfing hefur gert mér gott og
mér finnst sjálfsagt fyrir alla að hreyfa
sig meira en gert er í dag,“ sagði Guðrún
Sveinsdóttir hress í bragði í samtali við
Skinfaxa.
Guðrún Sveinsdóttir,
92 ára, gekk 44 sinnum
á Hvolsfjall í sumar
Hún vill ekki gera mikið úr
afrekum sínum en Guðrún
var svo óheppin nú á haust-
dögum að detta á heimili
sínu. Hún segist bjartsýn á að
komast á kreik á nýjan leik.
„Ég sakna þess að geta ekki
hreyft mig núna, en um leið
og ég hef náð mér fer ég af stað
aftur. Ég ætla að halda ótrauð áfram, ann-
að kemur ekki til greina í mínum huga.
Mér finnst fólk almennt ekki hreyfa sig
nóg í dag. Ég skil bara ekki þegar verið
að keyra krakka í skóla sem er næstum
því við bæjardyrnar. Ég þurfti alltaf að
ganga í þrjú korter í skóla þegar
ég var yngri og skipti þá engu hvernig
veðrið var. Það eru breyttir tímar
í dag,“ sagði Guðrún.
Guðrún segist aldrei hafa stund-
að neinar íþróttir en á yngri árum
var kennari hennar stundum
með Müllersæfingar.
„Ég hef bara gengið um ævina,
en ég er ekki synd einu sinni. Það
hefur hjálpað mér mikið að ég
hef alltaf verið heilsuhraust og það hefur
ekki haft lítið að segja,“ sagði Guðrún
Sveinsdóttir.
Efsta mynd: Guðrún
Sveinsdóttir á göngu
niður Hvolsfjall.
Til hægri: Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, og Gísli Páll Pálsson,
formaður HSK, en þau
færðu Guðrúnu viður-
kenningu og blómvönd.
Natan Freyr Morthens var dreginn
út af HSK og hlaut að launum bol
og jakka frá HSK, ásamt bókargjöf
frá UMFÍ. Hér er hann ásamt
bekknum sínum og Ómari Braga
Stefánssyni, landsfulltrúa UMFÍ.