Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.2009, Page 5

Skinfaxi - 01.11.2009, Page 5
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 5 Í sjálfstæðisvakningu og framfarasókn Íslendinga reyndust tímaritin öflugt tæki, kveiktu hugsjónaelda, efldu áræðni og nýja sýn. Ungir lærdómsmenn beittu í árdaga Fjölni og Nýjum félagsritum og með heimastjórn gerði æskulýðshreyfing Skinfaxa að tákni fyrir baráttuandann sem birtist í kjörorðinu Íslandi allt. Það sýnir styrk ungmennafélaganna og úthald að í heila öld hefur Skinfaxi verið í senn gunnfáni og vettvangur fyrir boð- skap og fréttir, frásagnir af öflugu starfi, umfjöllun um áform og glæstar vonir. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. Afmæliskveðja fr á forset a Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni: Ávallt boðberi nýrra tíma Þegar önnur rit enduðu sinn feril var Skin- faxi ætíð gæddur nýju fjöri, hélt áfram að þjóna kröfum sérhvers skeiðs. UMFÍ hefur á okkar tímum orðið sífellt öflugra, landsmótin glæsilegri, í senn hátíðir íþróttafólks og byggðarlaga. Ungl- ingalandsmótin hafa svo rutt nýjar brautir, gefið ungu fólki og fjölskyldum þess tæki- færi til að njóta heilbrigðrar samveru um helgi sem áður var blandin kvíða og áhyggjum. Það er í senn ævintýri og leiðsögn í því fólgin að UMFÍ skuli í upphafi annarrar aldar á ferli sínum vera mikilvægara í íslensku samfélagi en nokkru sinni. Skinfaxi hefur verið eins konar árbók og fjölmiðill þessarar merku sögu, ávallt boð- beri nýrra tíma, vísbending um breytingar en um leið skrásetjari þess sem vel var gert. Margir hafa lagt Skinfaxa lið á langri leið; sönnun þess að hugsjónirnar eru góður förunautur, afl sem yfirvinnur allar þrautir. Ég óska Skinfaxa til hamingju með tíma- mótin og færi öllum aðstandendum hans, fyrr og síðar, einlægar þakkir Íslendinga. Skinfaxi 100 1909–2009 ára

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.