Skinfaxi - 01.11.2009, Side 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Önnur úthlutun styrkja úr Umhverfis-
sjóði UMFÍ, Minningarsjóði Pálma
Gíslasonar, formanns UMFÍ 1979–
1993, fór fram 10. nóvember sl. við
hátíðlega athöfn í þjónustumiðstöð
Ungmennafélags Íslands við Laugaveg.
Við athöfnina flutti formaður UMFÍ,
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, ávarp og
Stella Guðmundsdóttir, ekkja Pálma
Gíslasonar, afhenti styrkina. Sjóðsstjórn-
inni bárust 18 umsóknir og var samþykkt
að styrkja fimm verkefni að upphæð
samtals eina milljón króna.
Eftirtaldir fengu styrk að þessu sinni:
1. HSK – Íþróttafélagið Hamar, kr. 400.000,
í verkefni sem gengur út á að bæta lýð-
Úthlutun úr Umhverfissjóði UMFÍ
heilsu og þekkingu almennings á nátt-
úru og umhverfi í hlíðum Reykjafjalls
við Hveragerði.
2. UÍA – Blakdeild Þróttar, kr. 300.000, til
að útbúa útivistarsvæði í tengslum við
strandblakvöll í Hjallaskógi.
3. UMSB – Golfklúbburinn Glanni, kr.
150.000, til að útbúa göngustíga fyrir
almenning í gegnum golfvöllinn sem
liggja niður að fossinum Glanna og að
Paradísarlaut.
4. HSK – Hestamannafélagið Geysir, kr.
75.000, til að útbúa trjálund á svæði
félagsins á Gaddstaðaflötum.
5. UÍA – Blakdeild Hattar, kr. 75.000, til að
fegra og bæta aðstöðu félagsins í
Bjarnadal á Egilsstöðum til útivistar
fyrir félagsmenn.
Frá vinstri: Ómar Diðriksson, Hesta-
mannafélaginu Geysi, Guðjón Guðmunds-
son, Golfklúbbnum Glanna, Stella Guð-
mundsdóttir, ekkja Pálma Gíslasonar,
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, Valdimar Hafsteinsson, Íþrótta-
félaginu Hamri, og Sæunn Skúladóttir,
Blakdeild Þróttar á Norðfirði.
Undanfarnar vikur hefur staðið yfir
vinna við uppfærslu á nýrri heima-
síðu Ungmennafélags Íslands. Þeirri
vinnu er nú lokið og var síðan tekin í
notkun 5. desember sl. Gamla síðan
hefur sinnt hlutverki sínu sl. sex ár,
en ljóst var að uppfærsla á henni var
nauðsynleg þar sem upplýsingatækni
á þessum tíma hefur breyst hratt.
Heimsóknum inn á síðuna hefur
fjölgað jafnt og þétt enda hefur hún
mikið upplýsingagildi fyrir hreyfing-
una.
Ný heimasíða UMFÍ tekin í notkun
Nú hefur heimasíðunni verið komið í
nútímalegra horf og allar upplýsingar
eru mun aðgengilegri og betri en áður.
Vonandi nýta ungmennafélagar sem og
aðrir gestir síðunnar sér nýju síð-
una. Eins og áður verður kapkostað að
koma fréttum og öðru efni til skila.
Það voru þær Helga Guðrún Guð-
jónsdóttir, formaður UMFÍ, og vara-
formaður hreyfingarinnar, Björg
Jakobsdóttir, sem ræstu síðuna og var
myndin tekin við það tækifæri.
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ, og
Björg Jakobsdóttir,
varaformaður.