Skinfaxi - 01.11.2009, Page 13
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 13
Ferðafélag Íslands
FJÖLBREYTT STARFSEMI Í YFIR 80 ÁR
Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag sem hefur það markmið að hvetja
landsmenn til að ferðast og fræðast um landið. Áhugi á gönguferðum,
fjallgöngum og útiveru hefur aldrei verið meiri og er mikið líf og fjör í
starfseminni.
Ferðafélagið leggur sig fram við að mæta þörfum breiðs hóps með miklu úrvali
ferða. Í ferðaflóru félagsins er að finna allt frá söguferðum um grösugar sveitir
til erfiðra jöklaferða. Í ferða áætlun félagsins geta flestir fundið eitt hvað við
sitt hæfi. Á 82 árum hefur Ferðafélagið efnt til meira en 8.500 ferða með yfir
200.000 þátttakendum.
Það eru allir velkomnir í Ferðafélagið og njóta félagsmenn sérkjara, bæði í
ferðum, skálum og í fjölda verslana. Auk þess fá allir félagsmenn árbókina
senda heim á hverju ári og er það hluti af árgjaldinu. Árbókin er einstæður
bókaflokkur um land og náttúru. Auk árbókanna hefur Ferðafélag Íslands
staðið að útgáfu handhægra fræðslu- og upplýsingarita um ferðamál, þjóðfræði
og sögu landshluta.
Félagsstarfið hefur í gegnum tíðina einkennst af miklu sjálfboða starfi.
Félagar hafa unnið að byggingaframkvæmdum, farið vinnu ferðir í skála eða í
frágangsferðir, stikað og unnið að uppbyggingu göngu leiða, unnið við brúargerð
og margt fleira. Í staðinn hafa þeir fengið fríar ferðir, fæði og félagsskap.
Félagið hefur unnið markvisst að samgöngubótum, lagt akvegi og brúað
ár. Það hefur haft samstarf við sveitarfélög um landgræðslu, náttúruvernd
og uppbyggingu svæða eins og t.d. í Landmannalaugum, á Þórsmörk og
Emstrum.
Sæluhús Ferðafélags Íslands og deilda félagsins úti um land eru þægilegir
áningarstaðir á ferðalagi um óbyggðir Íslands. Þau eru á 37 stöðum víðs vegar
um landið og getur allur almenningur nýtt þau óháð aðild að félaginu.
www.fi.is