Skinfaxi - 01.11.2009, Síða 15
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 15
listaverk var ekki fjarlægt af forsíðu Skin-
faxa fyrr en í ársbyrjun 1969.
Ekkert blað kom út árið 1964 og Skin-
faxi virtist vera að gefa upp öndina í
höndum formannsins. Þá var Hafsteinn
Þorvaldsson orðinn ritari samtakanna
og hann leitaði til Eysteins bróður síns
um að taka að sér ritstjórnina í ársbyrjun
1965. Eysteinn brást vel við og næstu
fjögur árin voru þeir Eiríkur báðir skráð-
ir ritstjórar blaðsins. Það var þó fremur
í orði en verki því Eysteinn var einn um
hituna og Eiríkur kom hvergi nærri.
Fyrsta verk Eysteins var að koma út
blaði fyrir árið 1964 og fyrsta hefti árs-
ins 1965. Þannig tókst honum að koma
í veg fyrir að útgáfa Skinfaxa félli niður
eitt einasta ár. Lengst af hafði Skinfaxi
verið prentaður í Félagsprentsmiðjunni
en nú tók prentsmiðja Þjóðviljans að sér
verkið. Prentgæðin minnkuðu tímabund-
ið en efnið varð frísklegra. Eysteinn var
áhugamaður um íþróttir og þær fengu
meiri umfjöllun en ræðuhöldin voru
skorin við trog. Þættir um íþróttir, skák,
leiki og skemmtan fengu aukið rými og
yngri kynslóðin fékk meira við sitt hæfi.
Meira líf í tuskunum
Strax árið 1966 fjölgaði Eysteinn tölu-
blöðum Skinfaxa upp í fjögur á ári og
árið 1969 voru þau orðin sex. Þá henti
Eysteinn Litla-Hraunsforsíðunni fyrir
róða og hóf að birta líflegar forsíðumynd-
ir. Hann beitti sér fyrir verulegu átaki
í útbreiðslumálum blaðsins með þeim
árangri að árið 1970 var tekjuafgangur
af rekstri Skinfaxa í fyrsta sinn um langa
hríð. Með tilkomu Eysteins breytti blað-
ið um svip og varð líflegra í útliti og
efnistökum. Störf hans voru nánast
ólaunuð enda var það forsenda fyrir
rekstri blaðsins að ritstjórinn væri ekki
dýr á fóðrum. Það var því af hugsjón en
ekki með hagnaðarvon sem Eysteinn
starfaði svo lengi við Skinfaxa og enginn
veit hvort saga blaðsins hefði orðið
lengri hefði hann ekki komið til liðs við
það árið 1965.
Í ársbyrjun 1977 tók Gunnar Krist-
jánsson, kennari og síðar skólastjóri á
Grundarfirði, við ritstjórn Skinfaxa í
hlutastarfi. Í ritstjórnartíð hans var inn-
heimtukerfinu breytt. Umboðsmanna-
kerfi ungmennafélaganna var aflétt enda
hafði það gefist misvel en tekin upp inn-
Gunnar Kristjáns-
son, ritstjóri Skin-
faxa 1977–1979.
heimta með gíróseðlum. Ekki var mikið
borið í útlit blaðsins á þessum árum og
forsíðumyndin var hin sama í tvö ár.
Það voru útlínur Íslandskorts með merki
UMFÍ í miðju. Þetta breyttist ekki fyrir
en í ársbyrjun 1979 og síðan hafa for-
síðumyndir prýtt Skinfaxa. Gunnar lagði
áherslu á stutta en fjölbreytta efnisþætti
og myndskreytingar jukust svo heita
Eysteinn Þorvalds-
son, ritstjóri Skin-
faxa 1964–1976.
Forsíða Skinfaxa frá 1971.