Skinfaxi - 01.11.2009, Síða 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Þann 28. október sl. var haldið félags-
málanámskeið á Hvanneyri í Borgarfirði
sem Ungmennafélag Íslands stóð fyrir.
Námskeiðið sóttu 18 nemendur Land-
búnaðarháskólans á staðnum og gekk
það vel í alla staði. Þátttakendur sýndu
mikinn áhuga og stóðu sig með prýði.
Leiðbeinandi á námskeiðinu eins og áður
var Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi
hjá UMFÍ.
Á námskeiðum þessum er farið yfir
ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, s.s.
Úr hreyfingunni
Félagsmálafræðsla:
Vel heppnað
námskeið á
Hvanneyri
að taka til máls, framkomu, ræðuflutning,
raddbeitingu, skipan ræðu o.fl. Einnig er
kennt ýmislegt sem við kemur fundar-
sköpum, m.a. fundarreglur, boðun funda,
fundarskipan, dagskrá funda, umræður,
meðferð tillagna, kosningar o.fl.
Frá októberbyrjun 2008 til maíloka
2009 voru haldin námskeið á þrjátíu stöð-
Þátttakendur á
félagsmálanám-
skeiðinu á Hvann-
eyri.
um víðs vegar um landið og þátttakend-
ur á öllum aldri voru um 700 talsins.
Þeir sem hafa áhuga á að fá námskeið
í sitt hérað geta haft samband við Guð-
rúnu Snorradóttur landsfulltrúa. Guðrún
mun kenna á námskeiðunum þar sem
Sigurður tekur að sér önnur verkefni hjá
UMFÍ. Skráningar eru á gudrun@umfi.is.
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA