Skinfaxi - 01.11.2009, Qupperneq 37
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 37
Ungmennafélagið Sindri á Höfn í
Hornafirði varð 75 ára 1. desember sl.
Þessum merka áfanga í sögu félagsins
var fagnað með ýmsum hætti laugardag-
inn 5. desember. Sýning, þar sem gerð er
grein fyrir sögu félagsins, var opnuð á
afmælisdaginn í Menningarmiðstöð
Hornafjarðar í Nýheimum.
Ungmennafélagið
Sindri 75 ára
Sannkölluð afmælishátíð var haldin í
íþróttahúsinu og flutt voru ávörp. Viður-
kenningar fyrir vel unnin störf fyrir Sindra
á undangengnum árum voru afhentar og
síðan reyndu starfsmenn ráðhúss og
bæjarstjórn með sér í knattspyrnu gegn
Íslandsmeisturum Sindra í 3. flokki
kvenna.
Úr hreyfingunni
Í lok dagskrárinnar var boðið upp á
dýrindis afmælistertu. Hinar fjölmörgu
deildir sem starfa innan vébanda Sindra
kynntu starfsemi sína í íþróttahúsinu.
Ungmennafélagið Sindri var stofnað af
um 15 ungmennum á Höfn í Hornafirði
1. desember 1934. Þá voru íbúar Hafnar-
hrepps 204 talsins. Það var um 1965 sem
Sindri tók fyrst þátt í Íslandsmóti í knatt-
spyrnu og síðan þá hefur liðið verið með
í mótinu, með smáhléum þó fyrstu árin.
Starfið hefur smám saman eflst um leið
og félaginu hefur vaxið fiskur um hrygg.
Áður höfðu ungmennin á Höfn verið í
Mána í Nesjum en þéttbýlið óx og með
því þörfin fyrir félagsskap íbúanna. Sem
venjan var á þeim tíma þá tóku félags-
menn upp á ýmsu og var þetta aðal-
félagsskapur yngra fólks í þorpinu frá
stofnun. Má nefna rekstur Sindrabíós og
blómlegt leiklistarlíf uns Leikfélag Horna-
fjarðar var stofnað af Sindrafólki sem áður
hafði leikið undir nafni Sindra.
Á fyrstu árunum handskrifuðu nokkrir
félagsmenn Leiftur, sem var málgagn
félagsins, og var það lesið upp á fundum
félagsins. Eftir stríð voru tveir herliðs-
braggar fluttir af Suðurfjörunum og kom-
ið fyrir á Heppunni og varð Sindrabragg-
inn aðalsamkomustaður og kvikmynda-
hús Hafnarbúa í ein 20 ár eftir stríð.
Fólk lagði vinnu í gerð íþróttavallar
nokkuð innan við þorp, í garðlöndum
Hafnarbúa, gegnt aflagðri mjólkurstöð
nú. Þá má nefna skólahald, kartöflurækt-
un, revíusamningu og -flutning og
sumarferðalög innan héraðs sem voru
mikið átak í vatnahéraðinu Hornafirði
þegar flestar ár voru óbrúaðar og vega-
gerð skammt á veg komin, hvað þá að
bifreiðaeign væri almenn. Áðurnefndur
völlur var notaður meira eða minna fram
undir 1970 eða svo. Félagsmenn fengu þá
að ráðast í gerð malarvallar þar sem nú
stendur Ásgarður. Sá völlur var frekar lítill
og ekki mjög spennandi en var eiginlega
strax tekinn af bæjarfélaginu undir lóðir.
Um 1965 tóku ungir menn við Sindra
og eftir það hefur félagið verið nær ein-
göngu íþróttafélag. Í fyrstu notuðu Sindra-
menn bláan keppnisbúning en rautt varð
fljótt eða um 1970 aðallitur félagsins.
Þannig var knattspyrna eiginlega eina
greinin sem stunduð var framan af, alla-
vega með keppni í huga. Núna er reynt
að bjóða upp á eins fjölbreytt íþróttalíf
og hægt er. Mestu ræður um framboðið
hvernig gengur að fá leiðbeinendur til
starfa og er það upp og ofan. Um nokk-
urt skeið hefur verið unnið að ritun sögu
félagsins og er það starf í höndum Arnþórs
Gunnarssonar sagnfræðings. Vonast er til
að sagan geti komið út innan skamms.
0000
Albert Eymunds-
son, kennari og
ritstjóri Eystra-
horns, (til vinstri),
afhendir Ásgrími
Ingólfssyni, for-
manni Sindra,
gjafir í tilefni 75
ára afmælis Sindra.