Skinfaxi - 01.11.2009, Blaðsíða 39
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 39
Landssamband æskulýðsfélaga og
Æskulýðsvettvangurinn efndu þann 23.
nóvember sl. til fjölmenns fundar um mál-
efni ungs fólks í þeim efnahagsþrenging-
um sem við búum við um þessar mundir.
Fundurinn var haldinn á Hótel Borg og
spunnust fróðlegar og gagnlegar umræð-
ur um málefnið. Ungmennafélag Íslands
er aðili að Æskulýðsvettvanginum ásamt
Bandalagi íslenskra skáta og KFUM og K.
Stefnumótið hófst á stuttu innleggi
Sindra Snæs Einarssonar, varaformanns
Landssambands æskulýðsfélaga, og í kjöl-
farið héldu Hreiðar Már Árnason, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra fram-
haldsskólanema, og Þórólfur Þórlindsson,
prófessor við Háskóla Íslands, stutt erindi.
Í máli Þórólfs kom fram mikilvægi þess
að læra af öðrum þjóðum, en einnig
okkur sjálfum og nefndi hann í því sam-
hengi þann kraft sem var lagður í félög
ungs fólks um aldamótin 1900. Þá spruttu
upp grasrótarhreyfingar ungs fólks sem
enn eru starfandi, t.d. UMFÍ og skátar.
Með þessu lagði hann áherslu á hversu
mikill virðisauki fæst með framlögum til
félagasamtaka. Menntamálaráðherra hélt
stutt ávarp og við lok þess hófust umræður.
Mikið var rætt um hugmyndir félags-
málaráðherra um skertar atvinnuleysis-
bætur til ungs fólks sem býr í foreldra-
húsum og stöðu framhaldsskólanna hér
á landi. Auk þess var rætt um gildi óform-
legrar menntunar, heildarstefnu í æsku-
lýðsmálum, lausnir fyrir ungt fólk sem vill
ekki sækja skóla og mikilvægi þess að ungt
fólk fái að vera með í umræðu um eigin
málefni og að ungt fólk sé sett í forgang.
Umræðan var málefnaleg og gafst öll-
um tækifæri á að koma sínum skoðunum
Landssamband æskulýðsfélaga og Æskulýðsvettvangurinn:
Ungt fólk átti stefnumót
við ráðamenn þjóðarinnar
á framfæri, hvort sem var ungt fólk eða
stjórnmálamenn. Af umræðunum má
draga þær niðurstöður að málefni ungs
fólks þurfi að komast á dagskrá stjórn-
málamanna og fara í forgang þar. Auk
þess þarf samráð og samvinnu í málefn-
um ungs fólks, bæði milli ráðuneyta og
í samfélaginu almennt til að vinna að
lausnum.
Leita á til ungs fólks um málefni þess
og gefa ungmennum tækifæri til að vera
með þegar ákvarðanir eru teknar í málum
þeirra. Ná þarf betur til ungs fólks og bjóða
upp á fjölbreytt úrræði. Í ungu fólki býr
kraftur sem þarf að nýta og líta á ástand-
ið sem tækifæri en ekki vandamál. Mikil
ánægja var með þetta framtak meðal
þátttakenda og var von þeirra að blásið
yrði til fleiri stefnumóta af þessu tagi.