Skinfaxi - 01.11.2010, Page 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Þórdís
Gísladóttir
Þórdís Gísladóttir er besta hástökkskona
á Íslandi frá upphafi. Hún á enn Íslands-
metið í greininni sem er 1,88 metrar og
sett 1990. Fyrsta metið setti Þórdís 1976,
en þá stökk hún 1,73 metra. Þórdís er
því búin að eiga Íslandsmetið í greininni
samfleytt frá 1976.
Þórdís byrjaði ferill sinn í ÍR, en giftist aust-
ur fyrir fjall eins og hún orðar það sjálf og var
í ellefu ár í HSK. Eftir veruna í HSK lá leiðin
aftur í ÍR. Þórdís keppti auk hástökksins í
110 metra grindahlaupi og í 4x100 metra
boðhlaupi. Þórdís keppti á tvennum
Ólympíuleikum, 15 ára gömul á leikunum í
Montreal 1976 og síðan 1984 í Los Angeles.
Hún keppti á sex heimsmeistaramótum auk
Evrópumóta.
Spennandi að hafa áhrif á
verðandi íþróttafræðinga
Þórdís er lektor við Háskólann í Reykjavík
og stýrir íþróttafræðisviði skólans. Hún hef-
ur starfað við deildina frá því að hún byrjaði
2005.
„Starfið í háskólanum er mjög skemmti-
legt og umhverfi hans einnig. Það er spenn-
andi verkefni að hafa áhrif á verðandi íþrótta-
fræðinga. Það er gaman að vinna við það
sem manni finnst gaman,“ sagði Þórdís.
Þórdís sagðist fylgjast vel með frjálsum
íþróttum í dag. Hún er alltaf að vinna fyrir
frjálsíþróttadeild ÍR og hefur verið aðstoðar-
„Man þegar ég var að
hlaupa á tómum bíla-
stæðum í Kringlunni“
Þórdís Gísladóttir setti fyrsta Íslandsmet sitt
í hástökki 1976. Núverandi Íslandsmet, sem
er 1,88 metrar, setti hún 1990.
þjálfari frá 1993, eftir að hún kom aftur til
félagsins frá HSK. Eiginmaður hennar, Þráinn
Hafsteinsson, er yfirþjálfari þar þannig að
hjónin lifa og hrærast í íþróttum. Auk þess
kenna þau bæði við Háskólann í Reykjavík
HVAR
ERU ÞAU
Í DAG?
og starfa í stærstu frjálsíþróttadeild á landinu.
„Það verður varla fundin eins góð forvörn
og það að hafa áhrif og vinna með ung-
dómnum. Það eru viss forréttindi að fá að
vinna með börnum og unglingum,“ sagði
Þórdís.
Íþróttir gegna orðið stóru
hlutverki í þjóðfélaginu
– Hvernig líst þér á frjálsar íþróttir í dag?
„Bara rosalega vel. Það er mikið og gott
starf víðs vegar um landið. Aðstaðan hefur
batnað heilmikið en Unglinga- og Lands-
mót UMFÍ hafa haft töluvert mikið að segja
í þeirri uppbyggingu um land allt. Frjáls-
íþróttahöllin olli byltingu fyrir frjálsíþrótta-
fólk en þetta var sú uppbygging sem frjáls-
ar íþróttir þurftu. Aðstaðan er þannig að
allir geta æft heima mjög vel en áður þurfti
fólk að fara erlendis til að æfa. Ég fór á sín-
um tíma út til Bandaríkjanna til að læra og
það var að miklu leyti vegna þess að hér var
engin innanhússaðstaða. Ég man þegar ég
var að hlaupa á tómum bílastæðum í Kringl-
unni eða að bíða eftir að henni væri lokað
svo að hægt væri að taka spretti. Það er
frábært fyrir ungt fólk nú til dags hafa þessa
aðstöðu sem komin er upp og það er ekkert
sem stoppar það í að ná árangri. Hér á landi
eru líka mjög góðir menntaðir þjálfarar með
mikla reynslu. Starfið er faglegt og gaman
að sjá hvað íþróttahreyfingin í landinu er að
vinna merkilegt forvarnastarf. Þetta þarf að
heyrast á þessum tímum niðurskurðar, hvað
íþróttir eru stór hluti af samfélaginu. Það er
gerðar kröfur til íþróttahreyfingarinnar eins
og grunn- og leikskóla. Íþróttir gegna orðið
stóru hlutverki í þjóðfélagi okkar,“ sagði
Þórdís Gísladóttir í samtali við Skinfaxa.