Skinfaxi - 01.11.2010, Síða 13
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 13
KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA
Á Forvarnadaginn kynntu frístundastjóri
og starfsmenn Húss frítímans á Sauðárkróki
niðurstöður lífsháttakannana, sem lagðar
hafa verið fyrir alla unglinga í Skagafirði í 8.,
9. og 10. bekk grunnskólanna árlega síðustu
6 ár, fyrir nemendum 9. bekkjar Árskóla á
Sauðárkróki. Niðurstöður í ár virtust ekki
koma unglingunum mikið á óvart og mátti
heyra á þeim hve stoltir þeir voru þegar
þeim var kynntur samanburðurinn á lands-
vísu.
Mjög góður árangur hefur náðst á öllum
sviðum forvarna hér á landi síðustu 5–10
árin en árangurinn í Skagafirði er umtals-
verður og betri en á landsvísu. Ef bornar eru
saman niðurstöður lífsháttakannana í Skaga-
firði árið 2005 og nú í ár og einnig niður-
stöður kannana á landsvísu þessi ár, kemur
árangurinn í ljós. 5% skagfirskra unglinga
sögðust í könnuninni í vor hafa orðið drukkin
en sömu spurningu svöruðu 22% játandi
fyrir 5 árum. Þá var það á pari við lands-
meðaltalið en í ár segjast 14% 10. bekkinga
á landinu hafa neytt áfengis síðustu 30 daga.
Mjög góður
árangur hefur
náðst í forvörn-
um í Skagafi rði
Reykingar meðal unglinga hafa dregist
saman í Skagafirði, úr 5% árið 2005 í 3% í ár.
Þessi tala fór hæst í 12% í Skagafirði árið
2008 en þá var strax brugðist við og árang-
urinn lét ekki á sér standa. 7% 15 ára ungl-
inga á Íslandi segjast reykja í dag. Tvö og
hálft prósent skagfirskra unglinga segjast í
ár hafa prófað önnur eiturlyf en áfengi og
tóbak en þessi tala var 6% fyrir fimm árum.
Landsmeðaltal 10. bekkinga, sem reykt hafa
hass, er 6%. En ýmislegt annað fróðlegt hef-
ur komið í ljós í könnunum okkar síðustu ár.
M.a. að daglegt sælgætisát unglinga hefur
Nemendur í
Árskóla á Sauðár-
króki komu saman
á Forvarnadegin-
um sem haldinn
var um allt land
3. nóvember.
dregist verulega saman og miklu fleiri borða
bara nammi um helgar. Þá segist um helm-
ingur unglinga geta talað daglega við for-
eldra sína í ár en árið 2005 sagðist aðeins
tæpur fjórðungur geta það.
Aðsókn að Félagsmiðstöðinni hefur
einnig aukist og segjast um 75% unglinga í
8.–10. bekkjum koma þangað a.m.k. þrisvar
sinnum í mánuði eða oftar. Það er full ástæða
til þess að hrósa skagfirskum unglingum
fyrir góðan og heilbrigðan lífsstíl og for-
eldrum fyrir að styðja þá.