Skinfaxi - 01.11.2010, Side 16
16 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Ráðstefnan MOVE um almenningsíþróttir:
Ráðstefnan Move er haldin af Inter-
national Sport and Culture Association
(ISCA) sem eru alþjóðleg samtök um
almenningsíþróttir. Ungmennafélag
Íslands er aðili að þessum samtökum og
hefur sent fjölmarga á námskeið hjá sam-
tökunum í áranna rás. Í ár var ráðstefnan
haldin í Frankfurt dagana 20.–23. októ-
ber 2010. Ráðstefnuna sóttu Helga Guð-
rún Guðjónsdóttir, Björg Jakobsdóttir,
Einar Haraldsson, Sæmundur Runólfs-
son og Sigurður Guðmundsson. Sam-
hliða Move var aðalfundur ISCA sem
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, og Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, sátu.
Gestir, sem sóttu ráðstefnuna, voru
meðal annars fulltrúar frá frjálsum félaga-
samtökum sem eru innan ISCA. Þá sóttu
einnig ráðstefnuna aðilar sem vinna að
verkefnum er lúta að hreyfingu almenn-
ings, svo sem læknar, stjórnmálamenn
og aðrir þeir sem vinna hjá sveitarfélög-
um. Ráðstefnugestir komu hvaðanæva
að en talið er að um 250 manns hafi sótt
ráðstefnuna að þessu sinni.
Ráðstefnan var byggð upp á fyrirlestr-
um sem fjölluðu um ýmis verkefni er
tengjast almenningsíþróttum og heilsu.
Fyrirlestrarnir fóru fram í tveimur sölum
þannig að velja þurfti á milli fyrirlesara.
Á ráðstefnunni kom fram að mikil
vakning hefur átt sér stað meðal stjórn-
Mikil vakning um mikilvægi hreyfingar almennings
málamanna um mikilvægi hreyfingar
almennings. Allar rannsóknir sýna að
sé fólk í góðu líkamlegu formi fram eftir
aldri sparar það þjóðarbúinu gríðarlega
fjármuni. Því er mikilvægt að hvetja fólk
til að gera hreyfingu að lífsstíl. Allir eiga
að hreyfa sig á hverjum degi.
Mikið var fjallað um verkefni sem hafa
það að markmiði að hvetja fólk til að
hreyfa sig. Kynntur var fjöldi verkefna
sem voru þó misáhugaverð. Flest öll
þessi verkefni miða að því að koma fólki
af stað við að hreyfa sig, sérstaklega þeim
sem hreyfa ekki sig reglulega. Sveitar-
félög hafa mikilvægu hlutverki að gegna
í því samhengi. Aðstæður þurfa að vera
þannig úr garði gerðar að fólk eigi hægt
um vik með að komast á milli staða, t.d.
í og úr vinnu, án þess að fara akandi. Því
er mikilvægt að borgir og bæir séu
skipulagðir þannig að auðvelt sé fyrir
hjólandi fólk að komast leiðar sinnar.
Best er að sérstakir hjólreiðastígar séu
fyrir hjólreiðamenn þar sem þeir skapa
öryggi sem er aftur til þess fallið að þeir
séu meira notaðir af almenningi.
Græn svæði og mikilvægi þeirra voru
til umfjöllunar. Þau gegna mikilvægu
hlutverki þar sem fólk getur hreyft sig
og komið saman. Oft er búið að setja
upp aðstöðu á þessum svæðum eins og
t.d. göngu- og hjólreiðastíga, blakvelli,
fótboltavelli og leiktæki. Því þurfa sveitar-
félög að vera meðvituð um að halda í
þessi svæði.
Á ráðstefnunni var meðal annars rætt
um hollustu á íþróttaviðburðum. Hvað
er í boði á flestum íþróttaviðburðum?
Oftast er það óhollur matur sem inni-
heldur mikla fitu og sykur. Kynnt var
verkefni sem hefur það markmið að
sporna gegn þessu. Spurningar eins og
hvort réttlætanlegt væri að selja óhollan
mat á íþróttaviðburðum voru ræddar
sérstaklega.
Áhugavert verkefni var kynnt sem
svipar mjög til Grunnskólagöngu UMFÍ.
Verkefnið gekk út á að krakkarnir settu
sér markmið, t.d. að komast frá Þýska-
landi til Íslands. Fyrir hverja mínútu,
sem þau hreyfa sig, komast þau áfram
um einn reit sem þau merkja inn á kort.
Samhliða þessu var kynnt matreiðslu-
bók þar sem frægir fótboltamenn hafa
tekið saman uppáhaldsmatinn sinn.
Að ráðstefnunni lokinni kviknuðu
margar hugmyndir og vonandi verða
einhverjar þeirra að veruleika síðar
meir. Einnig var gaman að sjá að verk-
efni UMFÍ gefa þeim verkefnum sem
kynnt voru á ráðstefnunni ekkert eftir.
Lengi má þó gott bæta en þær hug-
myndir sem kviknuðu á ráðstefnunni
Move 2010 verða væntanlega kynnar og
nýttar innan veggja UMFÍ.
Félagar í Ung-
mennafélagi
Akureyrar á
göngu í sumar.