Skinfaxi - 01.11.2010, Síða 23
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 23
að morgni, komið heim upp úr hálf fjögur
seinni partinn, og haldið áfram að vera virk-
ir þátttakendur í íþróttum hjá Snæfelli. Hér
á árum áður þurftu menn á borð Rikka Hrafn-
kels, Kristján Ágústsson og Bárð Eyþórs
ásamt mörgum fleirum að fara í framhalds-
skóla til Reykjavíkur. Við hefðum haft þessa
leikmenn áfram ef framhaldsskóli hefði verið
nær okkur. Eftir að heimamönnum fór að
fjölga í hópnum tengdist hann betur byggð-
inni hér og fyrir vikið fóru heimamenn að
sækja leikina betur, meira fjármagn kom
inn og þannig efldist starfið enn frekar.
Þetta skipti allt máli auk bættrar aðstöðu og
að fá fjölbrautarskólann á Snæfellsnesið, þá
héldum við ennfremur stelpunum lengur í
körfuboltanum. Áður en við vissum af voru
þær komnar upp í úrvalsdeild. Þær eru ekki
margar en mjög duglegar og metnaðarfull-
ar og standa sig með prýði í úrvalsdeildinni.
Þetta eru næstum því grunnskólastelpurnar
mínar sem eru nýfarnar í fjölbrautarskóla.
Auk þeirra leika með liðinu tvær erlendar
stúlkur sem hafa fallið mjög vel inn í hóp-
inn,“ sagði Gunnar.
Settum markið enn hærra
Þegar stelpurnar fóru upp í úrvalsdeildina
ákváðum við að setja markið enn hærra og
verða okkur úti um þjálfara sem hefði þjálf-
unina að aðalstarfi en væri ekki í fullri vinnu
frá átta á morgnana til fjögur eða fimm á
daginn og þurfa eftir það að fara á erfiðar
æfingar hjá meistaraflokkunum báðum og
öðrum flokkum.
Settum stefnuna á titla
Við settumst niður, Hólmarar, og settum
stefnuna á titla, leituðum að góðum þjálf-
ara og það er skemmst frá því að segja að
ég var með Inga Þór í huga. Ég gat ekki séð
að Inga Þór væri ætlað eitthvað aðalhlut-
verk hjá KR, ekki alveg á næstunni, en hann
var samt búinn að standa sig vel. Við veðjuð-
um á það að Ingi Þór væri svolítill sveita-
maður í sér og væri til í að búa úti á landi.
Hann væri aðeins í tvo klukkutíma frá mið-
punktinum sem allir miða við og allt miðast
við. Okkur tókst að fá þau hjónin hingað og
útveguðum konunni vinnu. Inga Þór gerð-
um við að aðalþjálfara, hann tók við báðum
meistaraflokkunum og sér um unglinga-
flokkana líka. Við gerðum þetta að einu
heildarstarfi en ég vil taka skýrt fram að við
erum ekki að gera lítið úr þeim öflugu mönn-
um og konum sem sinntu þessum þjálfara-
störfum fram að þessu.
Þjálfari í fullu starfi
Ég veit að Ingi Þór er oft að klippa leiki á
morgnana frá kvöldinu á undan. Hann er í
fullri vinnu við þetta. Ef í starfinu væri mað-
ur að kenna eða skólastjóri með þessu líka
þá væri sú manneskja í öðru meginstarfi, að
sjálfsögðu. Við vildum sjá mann í þessu
starfi sem gerði ekkert annað og í þessu
vinnuumhverfi er Ingi Þór. Við gerðum okk-
ur fyllilega grein fyrir því að erlend lið voru
farin að bera víurnar í toppleikmennina
okkar. Þetta var eðlilegt og við vorum stolt
af því að það væru erlendir aðilar að skoða
okkar leikmenn. Það segir okkur ekkert
annað en að starfið hjá okkur er í lagi,“ segir
Gunnar.
Gríðarlega efnilegar
Gunnar sagðist vera afar stoltur af báðum
liðum Snæfells, í karla- og kvennaflokki.
„Stelpurnar okkar eru kornungar en
gríðarlega efnilegar. Við þurfum nokkur ár
með þær í viðbót. Við skulum ekki gleyma
því að strákarnir þurftu sinn tíma til að kom-
ast þangað sem þeir eru í dag. Allir styrkt-
araðilar og stuðningsmenn Snæfells eru vel
meðvitaðir um körfuknattleikinn í Stykkis-
hólmi og standa þétt við bakið á því sem
við erum að gera. Ég er vakandi og sofandi
yfir þessu starfi mínu í körfuboltanum í
Stykkishólmi. Þetta er bara yndislega gam-
an og gefandi starf,“ sagði Gunnar Svan-
laugsson, formaður Körfuknattleiksdeildar
Snæfells, í spjallinu við Skinfaxa.
Hlynur Bærings-
son, lengst til
vinstri, sem nú
leikur í Svíþjóð.
Með honum á
myndinni eru
Gunnar Svan-
laugsson, formað-
ur körfuknatt-
leiksdeildar
Snæfells, Davíð
Sveinsson gjald-
keri og Hermund-
ur Pálsson vara-
formaður.