Skinfaxi - 01.11.2010, Page 24
24 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
KÖRFUBOLTI:
Ingi Þór Steinþórsson,
þjálfari Snæfells í körfu-
knattleik:
„Það var gæfu-
spor fyrir mig að
koma í Hólminn
að þjálfa“
Það er óhætt að segja að körfuknattleiks-
lið Snæfells í Stykkishólmi hafi heldur betur
slegið í gegn á síðustu misserum og unnið
nánast alla titla sem í boði eru. Síðasta tíma-
bil var stórkostlegt hjá félaginu en þá vann
liðið tvöfalt, bæði Íslands- og bikarmeistara-
titil. Fyrir þetta tímabil sá liðið á eftir sterkum
leikmönnum en það virðist ekki koma að
sök því að liðið heldur áfram á sömu braut.
Snæfellingar hafa leikið mjög vel í vetur og
verða í baráttunni um alla titla. Flestir eru
sammála um að sterk liðsheild hafi lagt
grunninn að þessum frábæra árangri en
ekki má gleyma þætti þjálfarans, Inga Þórs
Steinþórssonar, sem er einkar glæsilegur.
Stuðningsmenn liðsins eru engum líkir og
skiptir þá engu hvort leikið er heima eða
heiman. Mikil hefð er fyrir körfuknattleik í
Stykkishólmi og hún á eflaust einhvern þátt
í árangri liðsins.
Sterk liðsheild
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, er
að vonum ánægður með gengi liðsins. Það
lá fyrst fyrir að spyrja hann fyrst hvort geng-
ið í vetur væri ekki að koma honum á óvart.
„Strákarnir í liðinu leggja á sig ómælda
vinnu til að ná þessum árangri. Auðvitað
söknum við þeirra sem léku með okkur á
síðasta tímabili en ég get ekki annað en
verið stoltur af liðinu, hvernig hópurinn er í
heild sinni, hvernig leikmenn og stjórn hafa
unnið saman til þessa í vetur. Við erum að
leika mun betur en nokkurn mann óraði fyrir
en við megum samt ekki gleyma því að við
erum með menn í öllum stöðum. Menn
erum að vinna hlutina saman og eru jafn-
framt meðvitaðir um hvað þurfi að gera til
að ná árangri. Það áttu ekki margir von á
því að við yrðum í efsta sæti að loknum átta
umferðum. Liðsheildin öðru fremur er að
skapa þennan árangur. Erlendu leikmenn-
irnir falla vel inn í hópinn og Jón Orri og
Pálmar Freyr taka að sér stærri hlutverk en í
fyrra. Svo eru við með unga og efnilega leik-
menn á borð við Emil og Atla Rafn, þannig
að heildin er fín,“ sagði Ingi Þór í samtali við
Skinfaxa. Hann sagðist vera bjartsýn á fram-
haldið en keppnistímabilið væri varla hálfn-
að. Hann sagði aldrei að vita nema liðið
bætti við sig eftir áramótin.Tíminn myndi
leiða það í ljós. Fram undan væri spennandi
tími en leikmenn þyrftu að halda einbeit-
ingunni og leggja mikið sig til að halda
áfram á sömu braut.
Allir tilbúnir að leggja sitt
af mörkum
– Hvernig var fyrir þig að koma úr Reykja-
vík og fara að þjálfa í Hólminum?
„Það sem hefur komið mér hvað mest á
óvart er hvað hlutirnir hafa gengið vel fyrir
sig. Ég kom hingað að góðu búi og hér býr
gott fólk. Það eru allir tilbúnir að leggja sitt
af mörkum til að létta undir með liðinu. Það
er bara yndislegt að fá tækifæri til að vinna
í svona umhverfi. Umgjörðin í kringum liðið
er frábær,“ sagði Ingi Þór.
Aðspurður í hverju munurinn lægi að
þjálfa lið á höfuðborgarsvæðinu og í Stykkis-
hólmi sagði Ingi Þór hann vera nokkurn.
„Í Reykjavík, þar sem ég þjálfaði KR, þá er
körfuboltinn deild innan félagsins en fót-
bolti hins vegar aðalmálið. Úti á landi, eins
og í Stykkishólmi, er körfubolti númer eitt.
Mér finnst viðhorfið jákvæðara og vinnu-
umhverfið manneskjulegra hér fyrir vestan.
Fólk hér í Hólminum er ánægt með það sem
er verið að gera og stolt af sínu liði. Ég sé
aldrei eftir þeirri ákvörðun að fara í Stykkis-
hólm til að þjálfa. Það var gæfuspor fyrir mig
að koma hingað og ég hef bætt mig sem
þjálfara, það er ekki nokkur spurning. Mín
kenning í íþróttunum er að ef maður heldur
að maður kunni og viti allt þá geti maður
allt eins hætt þessu. Maður verður á hverj-
um einasta degi að einsetja sér að bæta sig,
gera betur og læra af mistökunum. Ég er
núna að vinna í því að hætta að jagast í
dómurunum,“ segir Ingi Þór kíminn.
– Ertu ánægður með stuðninginn sem þið
fáið frá áhorfendum?
„Það er ekki annað hægt, stuðningurinn
er frábær í alla staði. Ég get tekið sem dæmi
þegar að við kepptum við Hauka í Hafnar-
firði í vetur voru þar þrefalt fleiri Hólmarar
á leiknum en Hafnfirðingar. Það eru margir
Stykkishólmsbúar sem eiga heima á höfuð-
borgarsvæðinu þannig að við fáum alltaf
þéttan kjarna frá þeim á útileikjunum. Við
fáum frábæran stuðning á heimaleikjum í
Hólminum og stuðningur frá heimamönn-
um og fyrirtækjum er ómetanlegur. Fólk í
stjórninni er öflugt og er að vinna frábært
starf. Það er gott fólk að vinna hvert sem
litið er, bæði í meistaraflokknum og í yngri
flokkunum. Það verður ekki annað sagt en
að það sé bjart fram undan í körfuboltan-
um hér í Stykkishólmi. Yngri flokka starfið
gengur ágætlega þótt ekki séu margir í
hverjum aldurshópi en margir efnilegir þar
innan um,“ sagði Ingi Þór.
Jafnt og spennandi
– Sérðu fyrir þér að Snæfell standi uppi sem
Íslandsmeistari þegar keppni lýkur í vor?
„Ég get alveg séð fyrir mér að Snæfell fari
alla leið. Til að það gangi eftir verðum við
að bæta okkur á ákveðnum sviðum. Keppi-
nautar okkar eru allir að bæta sig en Kefl-
víkingar og KR eru til að mynda með firna-
sterk lið. Deildin er mjög jöfn og skemmti-
leg og mun verða það fram á lokaleik í
úrslitakeppninni. Þetta er nákvæmlega
eins og áhorfendur vilja hafa það, jafnt
og spennandi, og engin leikur auðveldur,“
sagði Ingi Þór Steinþórsson hress í bragði í
samtalinu við Skinfaxa.
Ingi Þór Stein-
þórsson, þjálfari
Snæfells, með
Íslandsbikarinn,
ásamt nokkrum
leikmönnum
liðsins.