Skinfaxi - 01.11.2010, Qupperneq 26
26 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Ægir Þór Steinarsson, körfu-
knattleiksmaður í Fjölni:
Hraðinn
heillaði mig
Fjölnismaðurinn Ægir Þór Steinarsson er í
hópi efnilegustu körfuknattleiksmanna lands-
ins. Ægir Þór er 19 ára gamall leikstjórnandi
úrvalsdeildarliðs Fjölnis og hefur vakið mikla
athygli fyrir framgöngu sína. Hann er útsjónar-
samur, teknískur og hefur yfir góðum hraða
að ráða. Ægir Þór sagði í samtali við Skinfaxa
að hann hefði verið um sjö ára þegar hann
byrjaði að æfa körfubolta. Fyrsti þjálfarinn
hans hefði verið Ragnar Torfason sem hefur
þjálfað margan körfuboltamanninn hjá
Fjölni í gegnum tíðina.
Körfuboltinn varð ofan á
„Ég æfði handbolta um tíma, en hætti því
snemma. Fótbolta æfði ég samhliða körfu-
boltanum allt upp í áttunda bekk. Þá varð
maður að gera upp við sig hvor greinin yrði
fyrir valinu. Körfuboltinn varð ofan á því mér
fannst hann skemmtilegri og ég var líka viss
um að ég myndi lá lengra í körfuboltanum.
Mér fannst harkan meiri í fótboltanum og
svo heillaði körfuboltinn mig meira og þá
hraðinn alveg sérstaklega,“ sagði Ægir Þór.
KÖRFUBOLTI:
Ægir Þór er 1,82 metrar á hæð og segist
léttur í bragði alltaf hafa verið minnstur á
vellinum. Hann hefur aftur á móti sannað
það að margur er knár þótt hann sé smár.
Hann byrjaði að æfa sjö ára eins og áður
sagði og lék upp alla yngri flokka Fjölnis.
„Ég gekk í Húsaskóla og var öllum stundum
í körfubolta. Ég bjó rétt hjá íþróttamiðstöð-
inni og þar æfði maður og lék sér öll stund-
um þegar tækifæri gafst,“ sagði Ægir Þór.
Deildin jafnari en áður
Aðspurður hvernig honum litist á vetur-
inn, sem fram undan væri, sagðist hann
vera bjartsýnn.
„Það hefur verið lögð mikil vinna í þenn-
an hóp sem skipar liðið okkar í vetur. Við
höfum keyrt á sama mannskapnum lengi
og því höfum við orðið góða reynslu í að
leika saman. Okkur hefur gengið vel til þessa
og við ætlum okkur að halda áfram á sömu
braut. Það verður hins vegar ekkert gefið í
deildinni í vetur. Deildin er jafnari en áður
og það getur ekkert lið bókað sigur á and-
stæðingi sínum fyrirfram. 2–3 lið hafa oft
skarað fram úr en það verður ekki svo í vet-
ur. Fleiri lið verða um hituna en áður sem er
besta mál og gerir bara deildina skemmti-
legri fyrir vikið,“ sagði Ægir Þór.
Ætla að komast á styrk
– Hvernig sérðu framhaldið hjá þér í körfu-
boltanum?
„Ég hef verið að skoða mín mál. Það er
ekkert launungarmál að ég stefni á háskóla-
nám í Bandaríkjunum næsta haust en ég lýk
stúdentsprófi frá Borgarholtsskóla í vor. Ég
hef verið að leita að skólum og taka próf
sem ég þarf að hafa lokið ef af skólavistinni
verður í Bandaríkjunum. Ég ætla að komast
á styrk og ég hef nú þegar fengið nokkrar
fyrirspurnir. Það skýrist svo væntanlega fljót-
lega á nýju ári hvort draumur minn rætist
en ég er bara bjartsýnn á það,“ sagði Ægir
Þór Steinarsson í spjallinu við Skinfaxa.
Ægir Þór Steinars-
son, Fjölni, er í
hópi efnilegustu
körfuknattleiks-
manna landsins.
Ármúla 30 | 108 Reykjavík | Sími 560 1600 | www.borgun.is
Borgun hefur sérhæft sig í öruggri greiðslumiðlun í
30 ár. Þekking okkar og reynsla nýtist viðskiptavinum
á hverjum degi, allan sólarhringinn.
Borgun býður:
Allar gerðir posa á hagstæðum kjörum
Öruggar lausnir fyrir vefverslanir
Skilvirka leið við innheimtu boðgreiðslna
Notendavæna þjónustuvefi
Hafðu samband í 560 1600 eða
borgun@borgun.is og fáðu tilboð í
færsluhirðingu.