Skinfaxi - 01.11.2010, Qupperneq 27
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 27
Ragnar Ágúst Nathanaelsson
úr Hamri er 2,18 m á hæð:
Ég varð ást-
fanginn af
íþróttinni
Ragnar Ágúst Nathanaelsson, 19 ára gamall
miðherji í körfuknattleiksliði Hamars í Hvera-
gerði, er einn stærsti Íslendingurinn í dag.
Ragnar hefur vakið óskipta athygli, honum
hefur farið mikið fram en einungis eru um
þrjú ár síðan hann hóf að æfa körfubolta af
fullum krafti. Ragnar Ágúst er 2,18 metrar á
hæð eða sömu hæðar og Pétur Guðmunds-
son sem fyrstur íslenskra körfuboltamanna
komast á atvinnumannasamning í NBA.
Hafði lítinn áhuga á íþrótt-
um framan af
Í spjalli við Ragnar Ágúst á dögunum kom
fram að framan af hafði hann lítinn sem eng-
an áhuga á íþróttum og fátt sem stefndi í að
einhver breyting yrði þar á.
„Ég var í tölvunni alla daga og hreyfði
mig ekkert. Það vantaði einhvern neista,”
sagði Ragnar Ágúst. „Ágúst Björgvinsson,
þjálfari Hamars, kom svo að máli við mig
þegar ég var 16 ára gamall og hvatti mig til
að fara æfa körfubolta. Ég ákvað að prófa
og frá þeirri stundu varð ekki aftur snúið.
Mér fannst þetta ofsalega gaman og varð
hreinlega ástfanginn af íþróttinni. Ég hrein-
KÖRFUBOLTI:
lega lifi fyrir þetta í dag og nýt þess í botn
að vera í körfuboltanum,“ sagði Ragnar
Ágúst sem er á öðru ári í húsasmíði við Fjöl-
brautarskólann á Selfossi. Hann segist æfa
sex sinnum í viku með liðinu en auk þess
skokkar hann sjálfur 2–3 sinnum í viku og
fer einnig í ræktina til að lyfta.
„Ég hef verið að vinna mikið í skotunum
upp á síðkastið og er vonandi að bæta mig
í þeim efnum. Ég horfi líka töluvert á efni úr
NBA-deildinni og tel mig hafa lært heilmik-
ið á því. Að taka aukaæfingar skiptir mig
öllu máli,“ sagði Ragnar Ágúst.
Er í góðu sambandi við
Pétur Guðmundsson
– Hvernig hefur þér litist á veturinn til
þessa?
„Okkur er að ganga betur en margir
þorðu að vona. Liðinu var spáð fallsæti en
við höfum notað það sem hvatningu og
það hefur ekkert annað en eflt okkur. Við
höfum verið að vinna stærri liðin en ekki
farið með rétt hugarfar í leikina gegn lakari
liðum. Fyrir vikið höfum lent þar í vandræð-
um en við ætlum að bæta úr því. Samheldn-
in í liðinu er mikil og við erum staðráðnir í
því að standa okkur vel í deildinni í vetur,“
sagði Ragnar Ágúst. Hann sagðist vera í
góðu sambandi við Pétur Guðmundsson
sem lék um nokkurra ára skeið með liðum í
NBA á borð við Portland, LA Lakers og San
Antonio. Pétur er búsettur í Bandaríkjunum.
„Ég hélt alltaf mikið upp á Pétur og ég er
í góðu sambandi við hann. Hann hefur gef-
ið mér góð ráð og veitt mér góðan stuðn-
ing. Það er ekki ónýtt að geta leitað til hans
til að fá góð ráð.“
Ég á mér draum
– Hvert ætlar Ragnar Ágúst að stefna í
framtíðinni?
„Ég ætla að bæta mig sem körfubolta-
mann og til að það gangi eftir verður mað-
ur að æfa vel, þetta kostar mikla vinnu. Ég
á mér draum að komast einhvern tímann
út til að leika körfubolta og vonandi verður
það að veruleika. Það væri gaman að fara til
Bandaríkjanna en það er ákveðinn aðili að
vinna í þessu fyrir mig og skoða möguleika.
Við höfum verið í sambandi við nokkra skóla
en tíminn verður að leiða í ljós hvenær
þetta verður að veruleika, kannski næsta
haust,“ sagði Ragnar Ágúst í samtali við
Skinfaxa.
Ragnar Ágúst
Nathanaelsson,
Hamri, hefur vakið
óskipta athygli í
körfuboltanum
hér á landi. Hann
er 2,18 m á hæð.
Þátttakendur
ánægðir með
hvernig til
tókst
Námskeiði um sögu
sunnlenskra ungmenna-
félaga lauk 15. nóvember
sl. Námskeiðið var haldið
á vegum Fræðslunets
Suðurlands, í samstarfi
við HSK. Kennari á nám-
skeiðinu var Jón M. Ívars-
son sagnfræðingur. Námskeiðið tókst
afar vel og voru þátttakendur ánægðir
með hvernig til tókst. Jón er mjög fróður
um þessa sögu en á dögunum kom út
bók um 100 ára sögu HSK sem hann
skrifaði.
Námskeið um sögu sunnlenskra ungmennafélaga:
Meðal þátttakenda á námskeiðinu var
Jóhannes Sigmundsson, fyrrverandi for-
maður HSK, og að námskeiðinu loknu fór
hann með eftirfarandi vísu:
Erum hérna átta manns
í uppfræðslu hjá Jóni.
Lútum góðri leiðsögn hans
um líf og starf á Fróni.