Skinfaxi - 01.11.2010, Síða 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Námskeið í félagsmálafræðslu:
Námskeið í félagsmálafræðslu, undir
yfirskriftinni Sýndu hvað í þér býr, hafa
verið haldin á nokkrum stöðum í vetur.
Námskeið hafa m.a. verið haldin á Horna-
firði, Kópavogi og í Reykjanesbæ. Það er
Ungmennafélag Íslands sem skipuleggur
námskeiðin sem hafa til þessa tekist vel.
Mikil áhersla er lögð á að þátttakendurn-
ir taki virkan þátt í námskeiðunum. Eftir
áramótin standa fleiri námskeið fyrir dyr-
um og er þeim aðilum sem hafa áhuga á
að fá námskeið til sín bent á að hafa sam-
band við Ungmennafélag Íslands.
Hlutverk námskeiðanna er að sjá þátt-
takendum fyrir fræðslu í ræðumennsku
og fundarsköpum. Ennfremur er farið í
ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku,
þ.e. að taka til máls, framkomu, ræðu-
flutning og raddbeitingu svo eitthvað sé
nefnt. Sigurður Guðmundsson, landsfull-
trúi UMFÍ, kennir á þessum námskeiðum.
Hann veitir allar nánari upplýsingar í síma
861-3379 og eins er hægt að senda hon-
um póst á netfangið sigurdur@umfi.is.
Knattspyrnudeildir
ungmennafélaga
sameinast Tindastóll og Hvöt
Í haust undirrituðu knattspyrnudeildir
Tindastóls á Sauðárkróki og Hvatar á Blöndu-
ósi viljayfirlýsingu um aukið samstarf deild-
anna. Þessi yfirlýsing felur m.a. í sér að félög-
in senda eitt sameinað lið til keppni í meist-
araflokki karla. Viðræður höfðu staðið yfir
um skeið og niðurstaða beggja var sú að
aukið samstarf geti ekki leitt til annars en
jákvæðra hluta. Skýrt er tekið fram að ekki
er verið að leggja félögin niður. Tindastóll
og Hvöt munu starfa áfram og vonast er til
að knattspyrnudeildirnar verða enn öflugri.
Bæði þessi félög hefðu leikið í 2. deild
karla á komandi leiktíð. Með þessari ákvörð-
un mun hins vegar eitt öflugra lið undir
nafni Tindastóls/Hvatar taka þar sæti.
Einnig mun sameiginlegur 2. flokkur þess-
ara félaga taka þátt í mótum á vegum KSÍ
auk annarra flokka. Yngstu flokkar félag-
anna keppa áfram undir merkjum sinna
félaga.
Þessi ákvörðun var ekki auðveld og við-
ræðurnar voru tilfinningamál. Aðilar töldu
hana þó skynsamlega og hún ætti einnig
að geta orðið öðrum til eftirbreytni í auknu
samstarfi á svæðinu.
Það er engin launung að aðstæður í sam-
félaginu hafa breyst á síðustu árum. Fjár-
magn til íþróttahreyfingarinnar hefur minnk-
að og æ erfiðara er að reka félög, jafnt á
FÓTBOLTI:
KS og Leiftur
Leiftur og KS samþykktu á aðalfundum
sínum að sameina félögin. Haldinn var stofn-
fundur sameinaðs félags KS og Leifturs í
beinu framhaldi. Kosið var um nafn á félag-
inu. Fyrir valinu varð KF – Knattspyrnufélag
Fjallabyggðar og munu sameinuð félögin
spila undir merkjum KF frá og með 1. janúar
2011. Enginn bauð sig fram til formanns í
sameinuðu félagi og er stjórninni ætlað að
finna sér formann á næstunni. Búningar nýs
félags verða bláir að lit og varabúningur
hvítir. Lög félagsins voru samþykkt á fund-
inum og taka þau gildi þegar ÍSÍ, UMFÍ og
UÍF hafa lagt blessun sína yfir þau.
þessu svæði sem öðrum. Knattspyrnudeild-
ir beggja standa þó vel að vígi fjárhagslega
og eru skuldlausar með öllu. Þetta samstarf
mun því gefa mikla möguleika þar sem meira
fjármagn verður til ráðstöfunar hjá hvoru
félagi til annarra hluta. Það er von aðstand-
enda þeirra að iðkendur fái að njóta þess
strax á næsta ári.
Samningi deildanna er fyrst og fremst
ætlað að hafa það að leiðarljósi að styrkja
knattspyrnuna á svæðinu, efla barna- og
unglingastarf og gera alla umgjörð í kring-
um knattspyrnudeildirnar enn betri, segir í
viljayfirlýsingu.
„Sýndu hvað í þér býr“
Frá leik Hvatar og BÍ/Bolungarvíkur
í 2. deildinni á Blönduósi í sumar.
Frá námskeiði sem haldið var í Myllubakkaskóla fyrir
nemendur í nemendaráðum í efstu bekkjum skólans.