Skinfaxi - 01.11.2010, Síða 31
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 31
Úr hreyfingunni
Sylvía Kolbrá Hákonardóttir, 17 ára blak-
kona úr Þrótti í Neskaupstað, hlaut 12.
nóvember sl. 100 þúsund króna afreksstyrk
úr Spretti, afrekssjóði UÍA og Alcoa Fjarðaáls.
Sylvía er ein af öflugustu leikmönnum Þrótt-
ar, og hefur leikið mjög vel með liðinu í
Íslandsmóti kvenna í blaki í vetur.
Sylvía hefur leikið með unglingalandslið-
um Íslands í blaki. Hún keppti með U-19 ára
landsliði Íslands á alþjóðlegu móti í Svíþjóð í
september sl. og einnig með U-17 ára lands-
liðinu á Norðurlandamótinu í blaki sem
fram fór í Danmörku í október sl.
„Ég er mjög stolt yfir að fá þennan afreks-
styrk og vil þakka þeim sem studdu mig.
Þetta hefur mjög hvetjandi áhrif og mig
langar að gera enn betur,“ segir Sylvía ánægð.
Sylvía leikur stöðu uppspilara með hinu
sterka liði Þróttar. „Okkur hefur gengið vel í
vetur og við höfum unnið fyrstu þrjá leikina
í Íslandsmótinu. Þetta er þriðja árið mitt
með meistaraflokki en við erum með mjög
ungt lið og meðalaldurinn er aðeins um 18
ára. Við urðum í öðru sæti í Íslandsmótinu
síðustu tvö keppnistímabil en nú stefnum
við á Íslandsmeistaratitilinn. Mér finnst við
hafa alla burði til þess. Það er mikill metn-
aður hjá okkur stelpunum í liðinu og einnig
frábær liðsandi sem skiptir auðvitað líka
gríðarlega miklu máli,“ segir Sylvía, en hún
stundar nám í Verkmenntaskólanum á
Neskaupstað.
Mikilvægt framtak fyrir
íþróttahreyfinguna
Alls var úthlutað 730.000 krónum úr
afrekssjóðnum Spretti. Iðkendastyrki, að
upphæð 50.000 kr. hvern, hlutu Fannar
Bjarki Pétursson, knattspyrnumaður úr
Leikni frá Fáskrúðsfirði, Björgvin Jónsson,
mótokrossmaður úr START, Daði Fannar
Sverrisson, frjálsíþróttamaður úr Þrótti, Erla
Gunnlaugsdóttir, frjálsíþróttakona úr Þrótti,
og þær Rannveig Júlía Sigurpálsdóttir,
Helena Kristín Gunnarsdóttir og Kristina
Apostolova, blakkonur úr Þrótti.
Þjálfarastyrk að upphæð 80.000 kr. hlaut
Auður Vala Gunnarsdóttir. Félagastyrki
hlutu Hestamannafélagið Blær, 70.000 kr.,
blakdeild Þróttar, 70.000 kr., frjálsíþrótta-
deild Hattar, 40.000 kr., og fimleikadeild
Hattar, 20.000 kr.
„Afrekssjóðurinn er mjög mikilvægt
framtak fyrir íþróttahreyfinguna á Austur-
landi. Við höfum átt afar farsælt samstarf
við Alcoa Fjarðaál í að efla og styrkja
íþróttastarf á Austurlandi,“ segir Hildur
Bergsdóttir, framkvæmdastjóri UÍA, en sam-
tals hefur sjóðurinn úthlutað 1,4 milljónum
króna á árinu.
Íþrótta- og ungmennasamband Austurlands:
Blakkona fær afreksstyrk
Lokafundur unglingalandsmótsnefndar í Borgarnesi
Lokafundur ungl-
ingalandsmóts-
nefndar í Borgar-
nesi var haldinn
17. nóvember sl.
Nefndin er sátt
við hvernig fram-
kvæmd mótsins
gekk fyrir sig og er
þakklát þeim mörgum aðilum sem komu
að mótinu með einum eða öðrum hætti.
Unglingalandsmótsnefndin vill sér-
staklega þakka sjálfboðaliðum, sveitar-
stjórn Borgarbyggðar og samstarfsaðil-
um fyrir frábæra aðkomu að mótinu.
Íbúar Borgarbyggðar lögðu líka fram
sinn skerf í undirbúningi mótsins sem var
eftirtektarverður.
Þátttakendur á mótinu í Borgarnesi í
sumar hafa aldrei verið fleiri á Unglinga-
landsmóti en rúmlega 1700 manns
skráðu sig til leiks. Talið er að um 10–12
þúsund gestir hafi sótt mótið en Borgar-
nes skartaði sínu fegursta í einstakri
veðurblíðu alla mótsdagana.
Frá lokafundi unglingalands-
mótsnefndar í Borgarnesi.
Sylvía Kolbrá Hákonardóttir,
blakkona úr Þrótti á Neskaup-
stað, fékk afreksstyrk úr Spretti,
afrekssjóði UÍA og Fjarðaáls.