Skinfaxi - 01.11.2010, Side 33
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 33
Ungmennafélagið Leiknir á Fáskrúðsfirði
fagnaði 70 ára afmæli sínu í október. Í tilefni
þess var blásið til þríþrautarkeppni þar sem
ungir sem aldnir spreyttu sig á að synda,
hjóla og hlaupa. Ungmennafélagsandinn
var þar í fyrirrúmi og höfðu þátttakendur
gott og gaman af.
Síðar um daginn var efnt til hátíðarsam-
komu í skólamiðstöðinni, snædd var dýr-
indis afmæliskaka og afmælisbarnið heiðrað
með margvíslegum hætti. Jakob Skúlason,
fulltrúi frá KSÍ, veitti þeim Steinunni Björgu
Elísdóttur og Steini Jónassyni starfsmerki
KSÍ fyrir mikið og gott starf í þágu knatt-
spyrnuhreyfingarinnar. Steinn Jónasson,
formaður Leiknis, sæmdi Gísla Jónatansson
gullmerki Umf. Leiknis fyrir dyggan stuðn-
ing við félagið.
Fjórar deildir starfandi
„Ég held að ég megi segja að starfið inn-
an félagsins sé með blómlegum hætti. Það
eru fjórar deildir starfandi, knattspyrna,
frjálsar íþróttir, sund og blak. Við erum með
í 3. deild á Íslandsmótinu í knattspyrnu sem
keppir þar undir merkjum Leiknis,“ sagði
Steinn Jónsson, formaður Ungmennafélags-
ins Leiknis, í samtali við Skinfaxa. Hann hefur
verið formaður félagsins frá 2002.
Góð aðstaða
Steinn segir aðstöðuna vera nokkuð góða.
Knattspyrnan hefur afnot af ágætum gras-
velli og á staðnum er íþróttahús sem tekið
var í notkun 1997, með löglegum hand-
bolta- og körfuboltavelli. Leiknir á og rekur
þreksal sem er eign félagsins. Félagar í Leikni
eru á þriðja hundrað talsins í dag.
„Við erum orðnir hluti af Fjarðabyggð og
niðri á Reyðarfirði er yfirbyggt knattspyrnu-
Ungmennafélagið Leiknir 70 ára
hús. Við nýtum það mikið á veturna fyrir fót-
boltann en aðstaðan þar kemur okkur til
góða. Að öðru leyti erum við sjálfbær og
litlu sundlaugina notum við enn í dag en
hún er ein elsta sundlaug landsins,“ sagði
Steinn.
Bjart fram undan
Hann sagðist ekki sjá annað en en að bjart
væri fram undan hjá Leikni. „Við reynum
bara að sjá björtu hliðarnar,“ eins og hann
komst að orði „og hér vinnur fullt af dug-
legu fólki.“
„Ég kom hingað austur 1974, var stjórnar-
maður hjá UÍA árin fyrir landsmót og klár-
aði mótið sem gjaldkeri UÍA. Fyrst að það
kom svona vel út fannst mér ágætt að aðrir
tækju við og fór niður á Fáskrúðsfjörð og
tók við Leikni. Félagið var þá í ákveðinni
lægð svo að ég hugsaði mér að það væri
bara fínt að beita sér aðeins þar næstu
árin,“ sagði Steinn Jónsson í samtalinu við
Skinfaxa.
Úr hreyfingunni
Elín Rán Björns-
dóttur, formaður
UÍA, færir Steini
Jónassyni, for-
manni Leiknis,
blóm og árnaðar-
óskir.
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags Íslands:
Reykjavík
Austur-Indíafélagið ehf., Hverfisgötu 56
Bílasmiðurinn hf., Bíldshöfða 16
Blaðamannafélag Íslands, Síðumúla 23
Ernst & Young hf., Borgartúni 30
Forum lögmenn ehf., Aðalstræti 6
Gáski sjúkraþjálfun ehf. - Bolholti og
Mjódd, Bolholti 8 og Þönglabakka 1
Gjögur hf., Kringlunni 7
Henson hf., Brautarholti 24
HGK ehf., Laugavegi 13
Kemis ehf., Breiðhöfða 15
Kjaran ehf., Síðumúla 12-14
Knattspyrnusamband Íslands,
Laugardal
Landsnet hf., Gylfaflöt 9
SÍBS, Síðumúla 6
Stólpi ehf., Klettagörðum 5
Suzuki bílar hf., Skeifunni 17
Túnþökuþjónustan ehf., Lindarvaði 2
Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf.,
Vesturhlíð 2
Veigur ehf., Langagerði 26
Ögurvík hf., Týsgötu 1
Kópavogur
Bifreiðaverkstæði Friðriks Ólafssonar
ehf., Smiðjuvegi 22
Kjöthúsið ehf., Smiðjuvegi 24 d
Kríunes ehf., Kríunesi við Vatnsenda
Réttingaverkstæði Jóa ehf.
Dalvegi 16a
Snælandsskóli, Víðigrund
Garðabær
Samhentir - umbúðalausnir ehf.
Suðurhrauni 4
Hafnarfjörður
PON - Pétur O. Nikulásson ehf.,
Melabraut 23
Rafal ehf., Hringhellu 9
Verkalýðsfélagið Hlíf.,
Reykjavíkurvegi 64
Reykjanesbær
Reykjanesbær, Tjarnargötu 12
Tannlæknast Einars Magnúss ehf.,
Skólavegi 10
Verslunarmannafélag Suðurnesja,
Vatnsnesvegi 14
Gestir gæða sér á
afmælistertunni á
hátíðarsamkomu
sem haldin var
í tilefni 70 ára
afmælis Leiknis.
Egilsstöðum
29. –31. júlí 2011