Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1942, Page 7

Ægir - 01.01.1942, Page 7
Æ G I R MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ISLANDS 35. árg. Rcykjavík — janúar 1942 Nr. 1 Davíð Ólafsson: Sjávarútvegurinn 1941. Inngangur. Á árinu 1941 selti styrjöldin svip sinn á sjávarútveg landsmanna meir en nokkru sinni fyrr. Áhrifa styrjaldarinnar g'ælti bæ'ði hcint og óheint á öllum sviðum sjávar- útvegsins, en þó mun það a'ðallega vera þrennt, sem djúptækust álirif liefur haft. í fyrsta lagi hið tiltölulega mjög til- finnanlega manna- og skipátjón af styrjaldarástæðum, i öðru lagi tundur- duflarekið við strendur landsins og i þriðja lagi viðskiptasamningar þeir, sem gerðir voru um sölu á fiskfram- leiðslu landsmanna. Það var um miðjan marz, sem ógnir styrjaldarinnar dundu yfir fiskiskip þau, sem sigldu með fisk til sölu á brezkan markað. Eftir að tvö skip höfðu orðið fyrir árásum, var ákveðið að hælla siglingum i bili. Hafði þetta viðtæk áhrif á afkomu þeirra skipa, sem við þennan rekstur voru riðin, svo <>g á afkomu bátaútvegsins, seni haf'ði selt mikinn hluta af afla sínuin í þessi skip, og þannig g'etað losnað við aflann "ýjan fvrir mjög sæmilegt verð. En þau tjón og önnur, sem síðar urðu bæði af völdum styrjaldarinnar og fyrir hamfarir náttúrunnar, hafa önnur og djúptækari áhrií’ á framtíð sjávarút- vegsins. Fiskiskipastóll landsmanna liefur gengið meir saman á árinu en dæmi munu vera til um langt skeið áð- ur, og er það því ískyggilegra sem erf- iðara er nú að fylla upp i skörðin á því sviði en nokkurn tíma fyrr. Raunveru- leg minnkun á fiskiskipastólnum nam á árinu 5,4% að rúmlestatölu, og er þó vafasamt að sum þeirra skipa, sem keypt voru til landsins á árinu, geti tal- izt fiskiskip eða verði það er fram liða stundir, svo að í rauninni mun minnkun fiskiflotans vera enn meiri. Hér er því um mjög' athyglisverða þróun að ræða fyrir sjávarútveginn og' raunar þjóðar- búskapinn i heild, en velmegun þjóðar- innar byg'gist nú meir á útgerð en nokkru sinni fyrr. Það er þvi þjóðar- nauðsyn að gera allt, sem unnt er, ekki aðeins lil að halda fiskiskipastólnum við, heldur auka hann af fremsta megni. Eins og áslandið er nú í heiminum, er ekki nokkur von til þess að fiskiskipa- stóllinn verði aukimi með aðkevptum skipum, hvorki nýjum né gömlum, þar

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.