Ægir - 01.01.1942, Page 52
46
Æ G I R
Taíla XXVI. Beitufrysting (síld og ltol-
krabbi) árin 1938—1941.
Fjórðungar Sunnlendinga 1941 kg 1940 ■<g 1939 kg 1938 kg
2 558 000 2 032 500 2 059 900 1 230 400
Vestfirðinga . t 043 000 580 000 862 000 369 000
Norðlendinga 783 500 334 500 559 800 751 200
Austfirðinga . 104 400 140 700 99 000 97 300
Samtals 4 488 900 3 087 700 3 580 700 2 447 900
frystingu á árinu, cn hún nani alls tæp-
um 45 þús. tunnum, á móti tæpum 31 þús.
tunnum við fyrri áramót. Er hér um nær
því 50% aukningu að ræða. Á árinu nam
magn það, sem fryst var af kolkrabba,
5 370 tunnum. Veiddist hann á Veslfjörð-
um og Steingrímsfirði, eins og áður var
sagt, og var mest af honum frvst þar,
en nokkuð flutt nýtl suður til Faxaflóa
og fryst þar. Er kolkrabbinn mjög eftir-
sóltur til beitu, þar eð talið er, að hann
sé mun heppilegri en bezta síld.
Eins og tafla XXVI sýnir, er meira en
hehningur allrar beitunnar í Sunnlend-
ingafjórðungi, en óvenjumikið hæði í
Vestfirðinga- og Norðlendingafjórðungi.
Það er allt útlit fvrir, að næg beita
verði á vertíðinni 1942, og verður það að
teljasl óvenjulegt. En það ælti ekki að
Iiindra það, að gerðar yrðu þær ráðstaf-
anir hið allra fyrsta, sem tryggðu það
eftir föngum, að beituskortur hamlaði
ekki útgerð um hábjargræðistímann,
eins og komið hefur fyrir nærri árlega.
(Sjá um þetta i 1. thl. Ægis sl. ár,
hls. 40).
9. Skipastóllinn.
Stærra skarð mun hafa verið höggvið
í skfpastól landsmanna á þessu ári en
nokkurn tíma fyrr. Hafa þar hjálpast að
hamfarir náttúrunnar og liernaðarað-
gerðirnar á hafinu. A árinu fórust alls
19 skip, sem voru samtals 3 207 rúml.
br. Auk þess var eitt skip sell úr landi,
en það var 749 br. rúml., svo að skipa-
stóllinn minnkaði alls um 3 956 hr. rúml.
Af þessum skipum voru 2 vöruflutn-
ingaskip, samt. 1 964 br. rúml., en hin
18 fiskiskip, samt. 1 992 br. rúml.
1 ársbyrjun var skipastólíinn talinu
alls 42 933 'br. rúml., og liefur því Iieild-
arrúmlestatalan minnkað um 9.2% á ár-
inu. Á móti þessu stórkostlega tjóni hef-
ur viðbótin af nýjum skipum eða göml-
um skipum keyptum til landsins, verið
lítil. Keypt hafa verið til landsins 4 skip,
2 flutningaskip og 2 l'iskiskip. Er eilt
keypt frá Portúgal, en var í Bandaríkj-
unum, annað frá Bandarikjunum, liið
þriðja frá Færeyjum og hið fjórða frá
Svíþjóð. Öll þessi skip, að hinu síðast-
talda undanteknu, eru gömul, eða 14—52
ára, og því cngin ynging á skipastóln-
um að fá þau. Rúmlestatala þessara
fjögra skipa er 940.
Nýbyggingar á árinu liafa verið með
minnsta nióti. Áðeins 2 bátar, 13 og 16
rúml. br. urðu tilbúnir á árinu. Var
annar smiðaður í skipasmíðastöð IvEA
á Akureyri, en hinn hjá Bárði Tómas-
syni á ísafirði.
Viðbótin við skipastólinn á árinu hef-
ur því numið alls 969 rúml. br. Raun-
veruleg minnkun á skipastólnum er því
um 3 000 hr. rúml., eða tæp 7%.
Þess her að geta, að nokkrir hálar
jmunu liafa verið fullsmiðaðir í árslok
og jafnvel nokkru fvrr, en vegna þess að
vélarnar vantaði, var eigi unnt að taka
þá lil notkunar. Mun hér vera um að
ræða 6—7 báta alls, flesta milli 15 og 20
br. rúml.
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar
á skipum á árinu, eins og áður. Lokið