Ægir - 01.01.1942, Side 56
50
Æ G I R
með sér, voru aðeins 2 bátar sektaðir fyr-
ir ólöglegar veiðar í landhelgi. Var annar
þeirra að veiðuin með botnvörpu við
Suð-Vesturland, en liinn með dragnót við
Auslurland.
13. Skiptapar og slysfarir.
Arið 1941 er eitt mesta mannskaðaár
til sjávar, sem um getur hér á landi um
langt árabil. Alls misstu 140 manns lífið
við skyldustörfin á hafinu, en 3 drukkn-
uðu af öðrum ástæðum, svo sem í ám og
vötnum o. fl. Af völdum ófriðarins er
vitað með vissu að 35 manns hafi látið
lífið, þar af 3 á erlendum skipum, en
líklegt er lalið, að 23 aðrir hafi látið lífið
af sömu ástæðum, eða alls 55 manns. Er
það æði stór fórn fyrir svo fámenna þjóð
sem okkur íslendinga.
Manntjónið á árinu var 81 manni
meira en á fyrra ári. Mesta sjóslysið á
árinu var, er bv. Sviði frá Hafnarfirði
fórst 2. des. út af Snæfellsnesi, og öll á-
höfnin, 25 manns, drukknaði, en alls
drukknuðu 57 manns af öðrum ástæðum
en liér á undan eru taldar, flestir á hafi
úti.
Á árinu fórust eða eyðilögðust:
9 bátar yfir 12 rúml.,
3 vélbátar undir 12 rúml.,
3 botnvörpungar,
3 línuveiðagufuskip,
1 flutningaskip.
Eitthvað mun og hafa eyðilagzt af
opnum vélbátum.
Af þessum skipum týndust 8 á hafi
úti, 4 sukku á legu eða rak á land, 3
slrönduðu, 2 voru með vissu skotin í kaf
og 1 sökk eftir árekstur.
Auk þess, sem Iiér er talið, munu hafa
larizt og strandað eitthvað af erlendum
skipum hér við land á árinu og sömu-
leiðis drukknað eitthvað af erlendum
mönnum, en vegna þess ástands, sem
Iiér ríkir, fásl engar áreiðanlegar lieim-
ildir um slíkt, og verður því að sleppa
því að þessu sinni.
Aflabrögð í Grímsey 1941.
Frá áramótum og fram yfir sumarmál
var ekki róið hér að staðaldri vegna
storma. Þegar á sjó gaf varð alltaf fisk-
vart og fékkst oft allgóður afli á árabáta.
Almennt var farið að róa í maí, en ó-
stilling hamlaði þó mjög sjósókn, enda,
eins og venjulega hér á þeim tíma árs,
beitulaust, þar eð ekkert frystibús eða
beitugeymsla er á eyjunni.
1 júní fór að fást reknetjasíld og glædd-
ist þá fljólt afli. I júni og' júlí var bag-
stæð líð til sjós og lands, enda fékkst þá
meginið af ársaflanum, eins og' venju-
legt er hér. — í ágúst aflaðisl talsvert,
])ótt stormasamt væri. — Sept. og októ-
ber brugðust alveg, en mikill fiskur virt-
isl þó, ef á sjó gaf. — í ágúst fór að afl-
asl smokkfiskur á djúpmiðum og virlist
hann betri beita en ný eða fryst síld,
smokkurinn fékkst allt baustið, en sjald-
an grunnt, og var bann óvenjulega stór.
—í nóvember voru rónir 6 róðrar í
hlaðafla og beitt smokk. Allgolt sjóveður
var þessa daga, sem róið var. — í des.
var stöku sinnum skroppið á sjó og virt-
ist nógur fiskur.
Til fiskveiða gengu á þessu sumri 8
trillur, 7 áral)átar og 2 dekkbátar um 4
lesla. — Um 45 manns stunduðu veiðarn-
ar, auk landbjálpar (kvenfólk og ungling-
ar). Sú lenzka er liér, að flestir, sem sjó
stunda, liafa einnig nokkurn landbúnað
og frátafir við hlunnindi m. m.
AUs varð ársaflinn, miðað við blautt
með dálk, 414 400 kg, og er það um %
meiri afli en i fyrra. Af þessum fiski var