Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 11

Ægir - 01.11.1944, Blaðsíða 11
Æ G I R 225 Stjórn félagsins hafði trú á því, að hann niundi geta ráðið bót á því, sem miður fór í ótgerðinni. En hvort tveggja var, að mjög Vai' farið að halla undan fyrir félaginu, þeg- ar Thor kom til þess og ráð hans voru höfð ai5 litlu. Féklc hann því engu um þokað, er gæti stuðlað að því að rétta útgerð þessa Ur kútnum. Thor Jensen varð hins vegar niargs visari við kynni sín af Vídalínsút- gerðinni, og mun sumt hafa komið honum :>Ó góðu haldi, er hann fór sjálfur að fást v*ð rekstur togara. hannig tókst þá til með hina fyrstu til- raun til togaraútgerðar á íslandi. Hlakkaði hátl í mörgum yfir óförunum. Eitt blaðið niinnist síðast á Vídalínsútgerðina á þessa iGð: „Botnverpinga erum vér nú lausir við kér úr flóanum um hríð. Síðasta eftirlegu- kindin af þeirn óheillagestum farin fyrir ' iku. Hann var úr Vídalínsfélaginu.“ í þess- uui orðum gætir ekki beinlinis saknaðar, það er eitthvað annað. Stuðningsmenn togaraút- gerðar urðu ærið vonsviknir með árangur- 'un, en þó voru ýmsir, sem töldu þessa byrj- 1111 engan veginn óyggjandi prófstein í þess- uui efnum. Ekki er óeðlilegt, þó að afdrif þessara til- rauna yrðu til þess að draga kjark úr ís- leindingum við að reyna sjálfir við togara- Utgerð. Nú hafði verið gerð tilraun, er ann- ars vegar byggðist á því að veiða í salt, en hins vegar á að sameina ísfisk- og saltfisk- yeiðar, og hvort tveggja mistekizt. Árangur- uui, sem fékkst af Vídalínsútgerðinni, var 'eyndar engan veginn samanburðarhæfur v*8 það, sem eðlilegt mátti heita. Wards- l|tgerðin fór þar nær lagi, en samt varð hún að leggja upp laupana. Telja má til happs, að það skyldu vera út- 'endingar, sem hófu þessar tilraunir, er urðu svo mjög dýrkeyptar. Reynsluna gátuíslend- ’ugar fært sér í nyt, án þess að kosta nokkru hl, þegar að því kæmi, að þeir færu að reka togaraútgerð. Margir íslendingar voru á l'essum skipum, bæði hér heima og ytra., og kynntust þeir því náið botnvörpuveiðunum. ^ ar það nokkur styrkur hinni islenzku tog- araútgerð, meðan hún var á gelgjuskeiði. Islendingar byrja togaraútgerð. Um aldamótin var stofnað hið svonefnda „Útgerðarfélag við Hafnarf jörð“. Einar Þor- gilsson i Hafnarfirði var aðalhvatamaður að stofnun þessa félags og framkvæmdastjóri þess. Félag þetta kevpti tvo kúttera, „Sur- prise“ og „Litlu Rósu“. Á vetrarvertiðinni 1904 kom leki að „Litlu-Rósu“, þar sem hún var við veiðar á Selvogsbanka. Björguðust skipverjar af henni upp i Selvogi, en skipið ónýttist. Þessi atburður var orsök þess, að Einar Þorgilsson fór þá um haustið á fund Indriða Gottsveinssonar skipstjóra, en hann hafði árið áður verið skipstjóri á „Haffara" Sig- urðar Jónssonar i Görðunum við Reykjavík. Erindi Einars við Indriða var að fá hann til að fara til Englands og leitast þar fyrir um kaup á kútter í stað Litlu-Rósu. Varð það úr, að Indriði tækist þessa ferð á hendur. Lagði hann upp í október með haustferð „Skálholts" til Noregs, en þaðan fékk hann skjótt ferð yfir til Englands. Staðnæmdist hann fyrst í Hull og fór þeg- ar að leita fyrir sér um skip. Var honum hent á að tala við W. A. Masseys & Sons, en hann var stærsti skipamiðlarinn þar, og hafði mörgum gefizt vel að hafa viðskipti við hann. Samkvæmt tilvísun Masseys varð það að ráði, að Indriði skvldi fara suður til Dover og skoða skip, sein þar var til sölu. Er þangað kom, skoðaði Indriði skipið, leizt á- gætlega á það og var staðráðinn í að festa kaup á því. En áður en gengið yrði frá samn- ingum um kaup á skipinu, barst honum svo hljóðandi skeyti: „Kaup ekki skip að svo stöddu, ef það ríður ekki í bága við skyldur þínar.“ Skeyti þetta fékk Indriði daginn fyrir Þorláksmessu. Var það sent frá Glasgow, og voru sendendurnir Einar Þorgilsson og Björn Kristjánsson kaupmaður í Reykjavík.' Indriði svaraði skeytinu um hæl og greindi frá, hvernig sakir stæðu. KI. 4 sama dag fékk hann enn á ný skeyti frá þeim Einari og Birni, og hljóðaði það svo: „Vertu kom- inn í Commercial hótel í Leith 1. jan. Allur kostnaður borgaður.“

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.