Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.1944, Side 20

Ægir - 01.11.1944, Side 20
234 Æ G I R var að kveikja í lúkara og yfirléitt ekki um önnur ljós að ræða en yfir áttavita og venju- ieg sigiingaljós. Matur var aftur á móti næg- ur enn þá. Heldur þótti nú vistin daufleg, þegar ekki var lengur hægt að bregða upp ijósi og það í háskainmdeginu. Tveimur eða þremur dögum síðar en þeir fengu áfallið, dreymdi Guðmund, að hann jióttist kominn til staðar, er hann hafði aldrei litið fvrr. Lá staður ])essi að sjó, og var þar talsverð byggð. Þótti honum Pálm- inn leggjast þar að einni bryggjunni. Einn manninn þekkti hann í hópnum, sem var á bryggjunni. Reyndist það vera Friðgeir Hallgrímsson frá Kjalveg undir Jökli. Var það ungur maður, sem verið hafði í sigling- um undanfarin ár. Hvað fleira bar við í þessum draumi man Guðmundur nú ekki lengur. Leið nú og beið, án þess að nokkuð mark- vert bæri við. Pálminn hjakkaði ýmist á- f’ram eða aftur á bak, unz hami bar upp und- ir breiða vík að morgni hins 20. desember. Var þá fáni dreginn að hún. Eftir nokkra stund bar þar að hafnsögumann, er bauðst lil að fylgja þeim til lands. Nú var ekki verið að telja eftir fimm krónur, því að ekki var innt eftir því, hvað fylgdin ætti að kosta. Skipaði hafnsögumaðurinn svo fyrir, að setja skyldi út öll segl og meira að segja jað- ar, og var nú siglt svo mikinn, að Muncb gamla þótti nóg að gert. Um kvöldið komu þeir til Egersund, og var lagzt fyrir festar þar í höfninni. Voru þá liðnir 49 dagar frá því að þeir lögðu frá Stykkishólmi, en 26 dagar frá því að þeir skildu við hafnsögu- manninn við Líðandisnes. Pálminn lá nú þarna á höfninni þar til milli jóla og nýárs, en þá var hann færður að hafnargarðinum og byrjað að gera við hann og losa farminn. — Það þóttist Guð- mundur sjá, að þetta væri staðurinn, sem borið hafði fyrir hann í draunmum. En hvergi varð hann var við Friðgeir Hall- grímsson. Guðjón Þorsteinsson, eini farþeginn á Pálma, skildi við þá félaga í Egersund, því að sýnt þótti, að úr því, sem komið var, mundi Pálminn ekki l'ara lil Hafnar á þess- um vetri. Skipverjar undu hag sínum vel í Eger- sund. Pálminn lá alltaf við bryggju, og var verið að smálosa hann. 5. marz var því lok- ið, og var ]iá þegar lagt af stað. Nú var ferð- inni heitið til Middlebourgh í Englandi. — Skip frá Noregi fylgdi þeim langleiðis, en eftir að þeir' skildu við það, lentu þeir í þoku og voru loks dregnir til lands af hjólabát. Er þeir voru að leggjast að bryggju í Mid- dlebourgh, var Friðgeir Hallgrímsson, sá er Guðmund hafði dreymt í hrakningunum, fyrsti maðurinn, sem hann kom auga á þar. Eftir vikudvöl í Englandi lagði Pálminn af stað áleiðis til íslands og' var þá lilaðinn salti. Ekkert sérstakt har við á þeirri leið, en þrjár vikur urðu þeir til Stykkishólms. Með miðsvetrarskipinu komu bréf til Stykkishólms frá skipverjum á Pálma, þar sem greint var frá ferð þeirra til Noregs. En löngu áður en þau koinu, höfðu borizt þangað fregnir, sem bentu til þess, að Pálm- inn niundi hafa farizt. Flaug meðal annars fregn um það, að rekald hefði borið að landi á Sandi, svo sem koffort og fleira, og töldu menn, að það mundi vera úr Pálman- um. Það, sem inest jók á líkurnar fyrir því, að Páhninn liefði farizt, var hinn mikli veðrahamur, sem hyrjaði í þann mund, er hann lagði frá Elliðaey og hélzt vikum sam- an. Menn urðu því alls hugar fegnir fréttun- um með miðsvetrarskipinu, en þó létti ótt- anum fyrst lil fulls, er Pálminn sást sigla inn á Stykkishólmshöfn síðla aprílmánaðar. 3

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.