Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1944, Page 44

Ægir - 01.11.1944, Page 44
258 Æ G I R H.F. HAMAR, Símnefnl: HAMAR, Reykjavik. Sfml: 1695, 4 linur. REYKJAVÍK. Framkvæmdarstjóri: BEN. GRÖNDÁL cand. polyt. Framkvæmum: alls konar viágeráir á skipum, gufuvélum og mótorum. Enn fremur rafmagnssuðu, logsuáu og köfunarvinnu. Utvegum og önnumst uppsetningu á frystivélum, niáursuáuvélum, hita- og kælilögnum, lýsisbræáslum, olíu- geymum og stálgrindahúsum. Fyrirliggjandi: ]árn, stál, málmar, þéttur, ventlar o. fl. Vélsmiðja ♦ Ketilsmiðja ♦ Eldsmiðja ♦ Járnsteypa íiskflutningaskip, er ýmist lágu á Ólafsvík eða Grundarfirði. Sjór var almennt stund- aður frá Sandi, og var veiði yfirleitt góð. Aflinn var lagður í frystihúsið á staðnum. Nokkrir bátar úr Stvkkishólmi stunduðu flyðruveiðar og' fengu reytingsafla, og var aflinn sendur með bilum til Reykjavikur. Vestfirðingafjórðungur. Patreksfjörður. Átta bátar stunduðu lóða- veiðar, og voru þrír þeirra þiljubátar. Yfir- leitt var góðfiski, og var sjór vel sóttur. Aflinn var 1500—4000 kg i róðri. Mest voru farnir 1(5 róðrar i mánuðinum. Tálknafjörður. Þaðan stunduðu 5 opnir vélbátar veiðar, og var aflinn vfir mánuð- inn frá 15—80 smál. á bát. Aflinn var lagð- ur í hraðfrystihús á Patreksfirði. Arnarfjörður. Einn 1(5 rúml. bátur og tveir opnir vélbátar stunduðu veiðar úr firðinum. Afli var yfirleitt góður. Mest aflaðist 5000 kg á þiljubátinn, en á smábátana 1200—1400 kg. Þilfarsbáturinn aflaði fyrir 22 þúsund krónur. Mest voru farnir 18 róðrar. Dýrafjörður. Tveir bátar úr Haukadal stunduðu veiðar af og til. Nýsmíðaður bátur frá Þingeyri, er Gullfaxi heitir, var um það hil að hefja veiðar í inánaðarlokin. Afli var vfirleitt tregur. Flaleyri. Þar var yfirleitt ágætur afli, eða 4000—5000 kg i róðri. Mest voru farnir 16 róðrar, en hæstu mánaðarhlutir urðu 1000 krónur. Suðureyri. Þar var yfirleitt reytingsafli- Hjá stærri bátunum, er sóttu á heimamið, var veiðin 3000—4000 kg í róðri. Smærri bát- arnir fengu 1000—2000 kg i róðri. Einn af stærri bátunum sótli á mið ísfirðinga, og fékk hann mest 13 (500 kg í róðri. Mest vorii farnir 12 róðrar. Aflinn var allur látinn i frystihús. Rolungavik. Gæftir voru óvenjugóðar, eft- ir því sem gerist á þessum tíma árs og afla- brögð í betra lagi. Mest voru farnir 21 róður. Mestur afli á stærri hátana var 7800 kg, en

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.