Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1945, Blaðsíða 5

Ægir - 01.09.1945, Blaðsíða 5
Æ G I R 179 Sj omann askóli inn #■ ■ nyi Laugardaginn 13. okt. var hið veglega sjómannaskólahús á Vatnsgeymahæð vígt iun leið og' Stýrimannaskólinn og Vél- stjóraskólinn voru settir í fyrsta sinn. Fjölmenni mætti við athöfn þessa, nein- endur eldri og yngri, gestir fjölmargir og var þeirra á meðal forseti íslands, herra Sveinn Björnsson. Friðrik Ólafsson, skólastjóri, setti at- liöfnina lyrir hönd byggingarnefndar og fól Einari Jónssyni, magister, að stjórna henni. — Auk Friðriks skólastjóra fluttu ræður: Emil Jónsson, sig'lingamálaráð- herra, Bjarni Benediktsson, borgarstjóri, Kjartan Thors, framkvæmdastjóri, fyrir hönd útgerðarmanna, Ásgeir Sigurðsson, skipstjóri, fyrir hönd Farmanna og fiski- mannasambands íslands og' Sigurjón A. Ólaf sson, fyrrv. alþm., fyrir hönd Sjó- mannafélags Reykjavíkur. nokkur þingmaður treystist til að beita þvi sem tyllirökum gegn málinu, livað þá meira. Það var árið 1941, að fjárveitingárvaldið v eitli fé til byggingar nýs skólahúss fyrir sjómannaskólana. Árið eftir, eða í nóvern- ber 1942, var byrjað á byggingunni og hefur verið unnið að henni æ síðan. Ýmsar tafir hafa reynda orðið á framkvæmd verksins og' voru það orsakir styrjaldar- innar, sem þeim ollu fyrst og fremst. Þegar skólarnir fluttu í húsið, var að fullu lokið við 18 skólastofur. Margt er enn ógert vi'ð skólahúsið og' margt vantar af tækjum til skólanna. Væntanlega verður úr því bætt svo fljótt sem kostur er. Sjómannaskólinn er tvímælalaust ein veglegasta bygging borgarinnar og ber svo hátt yfir, að á honum ber mest allra liúsa, hvaðan sem að bænum er komið, bvort heldur er af sjó eða landi. Þess mátti sjá glögg merki í svip margra, er viðstaddir voru skólavígsluna, ekki sizt eldri manna, að með þessu glæsilega menntasetri höfðu ræzt draumar, sem ekki voru aðeins nokk- urra nátta heldur áratuga gamlir. Víst er það', að ísl. sjómannastétt verður seint goldin Torfalögin, en minnug mun hún þess, hverjir slóðu fastast í ístaðinu, þegar L. lí.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.