Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1945, Blaðsíða 6

Ægir - 01.09.1945, Blaðsíða 6
180 Æ G I R Ingimundur Steinsson. Um niðursuðu fiskmetis. Grein sú, sem hér birtist, er útvarpserindi, sem höf. flutti í útvarpið fijrir skömma. Ingimundur Steinsson liefur dvatið í Þýzkalandi í 6 ár og unnið þar að niðursuðu fiskmetis. Hann fór utan 1938, á vegum fiski- málanefndar, til þess að kijnna sér fiskniðursuðu, aðallega í Þýzkalandi. Segir hann frá þcim lujnnum sinum og reijnslu í eftirfarandi grein. Efiir að Ingimundur kom heim í sumar, dvaldist liann norður á Siglufirði ásamt dr. Jakobi Sigurðssgni, en þeir unnu þar éi vegum síldarverk- smiðja rikisins að niðursuðu á sild og ýmsum rannsóknum i því sam- bandi. Nú i haust hefur Ingimundur verið við niðursuðu uppi á Akra- nesi og viðar. Ég ætla að segja ykkur dálítið frá fisk- niðursuðu og vinnu i verksmiðjum í Þýzkalandi. Ég fór í byrjun ársins 1938 til Hamborgar. í Hamborg var ég eitt ár i fiskirannsóknarstofu. Þarna lærði ég hin fræðilegu undirstöðuatriði og æfði mig í niðursuðu ýmsra fisktegunda. Þessi rann- sóknarstofnun var mjög þýðingarmikil fyrir fiskiðnaðinn. Eftir ársdvöl í þessari fiskirannsóknarstofnun vildi ég afla mér haldgóðrar verklegrar þekkingar í þessari grein. Fór ég þá austur í sjávarborgina Pillau í Austur-Prússlandi. Þar er mikill fiskiðnaður. Ég var fyrstu mánuðina aðstoðarmaður í smáverksmiðju, fékk sama og ekkert lcaup, en ég reyndi að halda ]>etta lit með sparnaði. Þá var mér boðin góð staða sem varaverkstjóri við aðra stærstu fiskniður- suðuverksmiðju Þýzlcalands, sem var þarna tileypt var heimdraganum í sambandi við skólabyggingarmálið. Þeir eru margir, sem á ýmsan hátt hafa stutt að því, að hug- myndin um skólásetrið á Vatnsgeymahæð er orðið að veruleika og allir eiga þeir þakkir skyldar. Að lokinni vígsluhátíð voru Stýrimanna- skólinn og Vélstjóraskólinn settir af hlut- aðeigandi skólastjórum. í Stýrimannaskólanum stunda alls um 120 nemendur nám í vetur, af þeim eru 75 nýir nemendur. Af þeim verða 30 í undirhúningsdeild til fiskimannaprófs, 11 í undirbúningsdeild fyrir farmannapróf og 23 verða í fiskiskipadeild, en fimm hafa lokið prófi upp í efri deildir. í öðrum bekk fiskimannadeildar verða 32 nemendur, í öðrum bekk farmannadeildar 6 og í 3. bekk farmannadeildar 10. Þrítugasta og fyrsta skólaár Vélstjóra- skólans hófst að þessu sinni og þá fyrst l'lutti skólinn í eigið húsnæði. Breytingar liafa ekki orðið miklar á skólanum frá þvi að hann var stofnaður, að því undanteknu, að rafmagnsdeild var stofnuð við skólann 1935. Frá því að skólinn var stofnaður hal’a litskrifazt þaðan 202 vélstjórar, 32 vél- gæzlumenn og 56 raffræðingar. — M. Jessen hefur veitt Vélstjóraskólanum for- stöðu frá því að hann tók til starfa.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.