Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1945, Síða 34

Ægir - 01.09.1945, Síða 34
208 Æ G I R frá uni útgerðarkoslnað. Sá samanburður sýnir, að úrtaksskipin hafa haft nokkru meira en meðalafla. Tafla 6. Samanburður á meðalafurðasölu úrtaksins og alls flotans í hverjum flokki. Flokkur Meðal afurðasala Mis- mun- llr kr. hjá öllum flotanum kr. hjá íirtalunu kr. 1 23 280 17 787 + 5 493 0 37 430 40 645 -4- 3 215 3 38 862 31 362 + 7 500 4 62 277 66 006 -t- 3 729 5 81 452 73 717 + 7 735 6 85 744 95 157 -7- 9 413 72 181 66 650 + 5 531 46 262 52 080 -f- 5 818 Sé meðaltalið í hverjum flokki marg- faldað með tölu skipanna í flokkunum kemur í Ijós, að heildartapið á síldarver- tíðinni í sumar hefur numið allt að 12 milljónum króna. En þá er reiknað með öllum útgjöldum eins og getið er hér að framan. Sé hins vegar tekinn siðasti dálk- urinn í töflu 4, þar sem liðunum fyrning. viðhald, útbúnaður og ýmislegt er sleppt úr útgerðarkostnaðinum mun láta nærri að fram komi beint tap á síldarvertíðinni, en með því er átt við tapið eins og það væri, ef fyrning, vextir af eigin fé og skyldir gjaldaliðir væru ekki taldir með í útgerðarkostnaðinum. Með því að reikna beint tap á þennan hátt reynist það ca. 6 milljónir króna. Vegna þess, hye hér er um stórt tap að ræða, töldu nefndannenn ekki fært að tengja þá aðstoð, sem þyrfti að veita vegna ])ess, á nokkurn hátt við þær tillögur, er nefndin mun síðar gera, um ráðstafanir lil úrbóta í slíkum tilfellum í framtíðinni. Gert er ráð fyrir, að þar verði um trygg- ingafyrirkomulag að ræða. En ef það ætti að byrja á því að innheimta iðgjöld ekki aðeins lil sjóðmyndunar til notkunar við aflabrest í framtíðinni heldur Hka til þess að bæta að verulegu leyti tapið frá því i sumar (t. d. allt beint tap), mundu það verða svo há iðg'jöld, að tryggingarnar kæmust sennilega aldrei í framlcvæmd. Aulc þess mundu slik iðgjöld gera stóruin óaðgengilegra að leggja í útgerð með nýj- um skipum, þar sem greiða þyrfti veruleg gjöld af afla þeirra, er gætu alls ekki kom- ið útgerð þess skips að gagni, sem sé þann hluta iðgjaldsins er færi til að bæta tapið í sumar. Að öllu þessu athuguðu er það álit nefndarinnar, að sérstakar ráðstafanir til hjálpar litgerðinni vegna tapsins á síldar- vertíðinni í sumar, þyrftu að vera svo víð- tækar, að enginn útgerðarmaður neyðist til að hætta útgerð eingöngu vegna beins laps á þeirri vertíð. Hins vegar telur nefndin ekki ástæðu til, að gengið verði mikið lengra en þetta. Sé miðað við það, eru að sjálfsögðu mjög margir útgerðar- menn, sem engrar aðstoðar þurfa. Nefndin ræddi ýtarlega i hvaða formi væri heppilegast að veita aðstoðina, og var í því sambandi grennslast eftir álili ýmsra útgerðamanna, sem til náðist. Urðu nefnd- armenn á einu máli um að legg'ja til, að veitt yrðu stutt vaxtalaus lán. Til þess að fá nokkru nánari hugmynd um það, hve mikið lánsféð þyrfti að vera, var reynt að ná tali af öllum þeim útgerð- armönnum, sem ætla mátti að væru illa stæðir eftir sumarið, og grennslast eftir, hve mikið lánsfé þeir þyrftu. Náðist til út- gerðarmanna 57 skipa. Virtist lánsþörl' þeirra vera ca. 3 milljónir króna. Með hlið- sjón af þessu og því, sem áður er sagt um beint tap á öllum flotanum, lítur nefndin svo á, að lánsféð þurfi að vera 3 til 4 milljónir króna. Útvegun lánsins verður að sjálfsögðu að fara fram með milligöngu ríkisins, og' rík- ið að ábyrgjast það. En í þessu sambandi vill nefndin benda á eftirtalin atriði. Bankar landsins, einkum Landsbanki Is- lands, eiga miklar innslæður í erlendum bönkum. Af þeim fá þeir litla vexli. Þar sem lán þetta yrði til fárra ára með ríkis-

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.