Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1982, Síða 12

Ægir - 01.09.1982, Síða 12
Hann fullyrti einnig, að lítill vandi væri að varð- veita kápuna — skinn og spik — ef hún væri vand- lega þvegin og kæld og ef á væri borið sérstakt efni, sérlega til að koma í veg fyrir eða draga úr gulnun skinna. Einnig er hægt að frysta kápuna og vinna skinn og spik síðar. Á Nýfundnalandi er töluverð neyzla selkjöts. Það er ýmist soðið niður — 40—60 þús. kassar ár- lega — ef nægilegt og hentugt hráefni berst að, fryst í lofttæmdum umbúðum og þá einkum hryggvöðvi. í báðum þessum tilfellum þykir kjöt af sel ársgömlum eða eldri betra en af kóp. Einnig er hreifinn ýmist seldur ferskur eða frystur, fleginn og afspikaður. Er hann framreiddur í veitingahús- um og í heimahúsum ýmist bakaður í ofni, eða glóðarsteiktur. Er þetta ágætur matur. Þessar afurðir eru einnig fluttar til meginlands Kanada og víðar. í svipinn er eftirspurn þar mest hjá fólki upprunnu frá Nýfundnalandi og afkom- endum þeirra, bæði í Kanada og á A-strönd Bandaríkjanna. Tilraunir með meltuframleiðslu á selkjöti fara fram. Búnaður til mjölvinnslu úr beinum og kjöti sem ekki er unnið til manneldis eða meltu, er til í hvalstöð þeirri, sem hér um ræðir. Arðsemi Ekki er í svipinn kvartað yfir arðsemi skinna- og selkjötsframleiðslu í Kanada, enda þótt verð á skinnum hafi lækkað töluvert undanfarið. Að sögn þeirra í Kanada má skinnaverð þó ekki lækka frekar, ef unnt á að vera að greiða selföngurum verð, sem staðið getur undir útgerðarkostnaði og sæmilegum hlut áhafna, enda hafa kjör þeirra versnað undanfarið með lækkuðu verði skinna. Á þetta sérstaklega við um veiðar á ísnum við Labr3 dor og i St. Lawrence flóa. Blikur eru þó á lofti, einkum vegna samþyk ^ þings Efnahagsbandalags Evrópu um bann ^ innflutningi selafurða. Þetta bann hefur samt en ekki hlotið staðfestingu aðildaþjóða bandalags'n Samkvæmt upplýsingum Kanadamanna sten^ framleiðsla niðursoðins selkjöts í járnum 011 við 40—60 þús. kassa árlega, enda árstíðarbun 1 Frysting á selkjöti er enn á tilraunastigi. Gmtti P nokkurrar bjartsýni í því efni, enda verð á try selkjöti hagstætt neytendum og eftirspurn Þe- töluverð. ta Framleiðsla selshreifa er arðsöm, enda aukag fram að þessu. Allir eru þessir þættir samt sa^ tengdir, ef selveiðar eiga að geta gengið an stakra styrkja. Rétt er þó að vekja athygh á Pe áhrifum, sem atvinnuleysisbætur hafa í þessu s ^ bandi á Nýfundnalandi varðandi þennan útveg raunar fiskveiðar og vinnslu fiskafurða einmg- ^ Meginhluti selveiðanna er árstíðarbundinn ^ skiljanlegum ástæðum. Þegar hinsvegar er a e ina litið, bæði selveiðar svo og fiskveiðar arag ^ smærri báta, er lítið um það, að menn í til, þótt fiskigöngur standi stutt við og vertíðir P sumum tilfellum einungis tveir til þrír m80 Atvinnuleysisbætur eru greiddar annan tima ^ Að sögn þeirra manna, sem rætt er við, er allmikið ormavandamál að stríða, einkum í Þor ^ sem veiddur er í St. Lawrence flóa og við SA-n Nýfundnalands. Eina þekkta ráðið til að sP°ratj við eða draga úr þessum vanda, er að þeirra ^ að halda selstofnum í skefjum. Við Á-stf Kanada tengist þessi vandi frekar landsel en ° tegundum. ■ er tímarit þeirra, sem vilja fylgjast með því helsta, sem er að gerast í sjávarútvegi. 460 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.