Ægir - 01.09.1982, Blaðsíða 46
NÝ FISKISKIP
Guðlaugur Guðmundsson
SH 97
24. júlí s.l. afhenti M. Bernharðsson, Skipa-
smíðastöð h.f. á Isafirði nýtt stálfiskiskip, sem
hlotið hefur nafnið Guðlaugur Guðmundsson SH
97, og er nýsmíði nr. 51 hjá stöðinni. Síðustu ný-
smíðar stöðvarinnar voru Bryndís ÍS, 29 rúmlesta
stálfiskiskip (afhent í okt. ’79). Og Heiðrún ÍS, 294
rúmlesta skuttogari (afhentur í jan. ’78).
Skipið, sem er hannað hjá stöðinni, er tveggja
þilfara fiskiskip, búið til tog-, neta- og línuveiða.
Eigandi skipsins er Enni h.f. Ólafsvík. Skipstjóri á
skipinu er Steinþór Guðlaugsson og 1. vélstjóri
Heiðar Hafsteinsson. Framkvœmdastjóri útgerðar
er Óttar Guðlaugsson.
Mestalengd ........................ 25.99 m
Lengd milli lóðlína................ 23.60 m
Breidd ............................. 7.24 m
Dýpt að efra þilfari ............... 6.05 m
Dýpt að neðra þilfari............... 3.75 m
Eiginþyngd .......................... 268
Særými(djúprista3.70m) .............. 398
Burðargeta (djúprista 3.70 m) ....... 130 3
Lestarrými .......................... 160 m3
Brennsluolíugeymar ................... 50 m3
Ferskvatnsgeymar ..................... 10 m3
Sjókjölfestugeymar..................... 4 m
Ganghraði (reynslusigling) .......... H-9
Rúmlestatala ........................ 160 br •
Skipaskrárnúmer..................... 1622
áðtú
Aftast á efra þilfari er skutrenna, eins og ^
hefur komið fram, og yfir henni toggálgar
pöllum, s.b.- og b.b.-megin. í framhaldi af s
rennu kemur vörpurenna, sem greinist i ^
bobbingarennur. Bobbingarennur liggja ut
síður og ná fram á móts við framhlið brúan AP
stýrishúss er ljósa- og ratsjármastur, en i a
kanti stýrishúss eru hífingablakkir.
Almenn lýsing:
Skipið er tveggja þilfara fiskiskip með gafllaga
skut, lóðrétt stefni neðan sjólínu, og litla
skutrennu upp á efra þilfar, og er búið til tog-,
neta- og línuveiða. Skipið er byggt úr stáli eftir
reglum og undir eftirliti Siglingamálastofnunar
ríkisins.
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórum
vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir sjó; íbúðir með botn-
geymum fyrir ferskvatn; fiskilest; vélarúm með
síðugeymum fremst og hágeymum aftast fyrir
brennsluoliu; og aftast skuthylki fyrir brennslu-
olíu. Fremst i stafnhylki eru keðjukassar, og asdik-
klefi fremst i lest.
Fremst á neðra þilfari er geymsla en þar fyrir
aftan íbúðir. Aftan við íbúðir er vinnuþilfar (að-
gerðarrými) með fiskmóttöku og aftast stýrisvélar-
rúm fyrir miðju. S.b.-megin við stýrisvélarrúm og
fiskmóttöku er verkstæði en geymsla b.b.-megin.
Á efra þilfari, nokkru framan við miðju, er
stýrishús skipsins sem hvílir á reisn, en aftan við
miðju eru síðuhús, s.b.-megin stigagangur, en b.b.-
megin eru útblástursrör véla, loftblásarar og lítil
geymsla.
Vélabúnaður: ,
Aðalvél ásamt gír og skrúfubúnaði er fra
Grenaa Motorfabrik. Aðalvélin er sex str0 ^
fjórgengisvél með forþjöppu og kælmSu ^
fæðilofti. Vélin tengist skrúfubúnaði geg
vökvatengsli og gír.
Tæknilegar upplýsingar (aðalvél m/skrúfúbu'
aði):
Gerð vélar .............6 FR 24 TK
Afköst .................940 hö við 750 sn/m*n
Gerð niðurfærslugírs .... Grenaa FR
Niðurgírun .............2.14:1
Gerð skrúfubúnaðar .... CP
Efni í skrúfu ..........NiAl-bronz
Blaðafjöldi ............3
Þvermál ................ 1760 mm
Snúningshraði...........351 sn/mín
Skrúfuhringur...........Kort Propulsion
' ff3
Við fremra aflúttak aðalvélar tengist ur
Norgear, gerð FC-570-28010, með
aflúttökum, einu fasttengdu en hinum tve
494 — ÆGIR