Ægir - 01.10.1982, Page 10
HAF- OG FISKIRANNSÓKNIR
Hjálmar Vilhjálmsson og
Vilhelmína Vilhelmsdóttir:
Fjöldi og útbreiðsla
fiskseiða í ágúst 1982
Hin árlega könnun á fjölda og útbreiðslu fisk-
seiða við ísland, Austur-Grænland og í Græn-
landshafi var gerð á rannsóknaskipunum Bjarna
Sæmundssyni og Hafþóri á tímabilinu 6/8—4/9,
1982. Einnig tók rs. Árni Friðriksson þátt í rann-
sóknunum seinustu daga ágústmánaðar úti af
Vestfjörðum og Breiðafirði en skipið hafði verið
við bergmálsmælingar á kolmunna sunnan-, aust-
an- og norðanlands fyrr í mánuðinum. Eins og
venjulega beindust athuganir einkum að seiðum
þorsks, ýsu, loðnu og karfa enda þótt upplýsingar
fengjust eins og venjulega um ýmsar aðrar te
undir. ^
Aðferðir við öflun gagna og úrvinnsla voru h1
venjulega sniði. Á hinum íslenska hluta svseðis
voru gerðar hefðbundnar átu- og sjórannsóknir^
fyrirfram ákveðnum stöðum, en annars staðar
eins mældur sjávarhiti. Á íslenska svæðinu
einnig mæld framleiðni plöntusvifs og þorskur
merktur við A-Grænland auk þess sem gerðar v
athuganir á smákarfa. Niðurstöður þessara si
töldu athugana eru þó ekki ræddar í
skýrslu.
þessan
1. mynd. Leiðarlínur og togstöðvar. Ágúst 1982.
514 —ÆGIR