Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.1983, Qupperneq 14

Ægir - 01.01.1983, Qupperneq 14
41. FISKIÞING - 41. FISKIÞING - 41.FISKIÞING - 41. FISKIÞING Skýrsla Más Elíssonar fiskimála- stjóra til 41. Fiskiþings um starfsárið 1981—1982 í þessari skýrslu minni um starfsemi Fiskifélags- ins á liðnu starfsári, mun ég fyrst fjalla um sam- þykktir og ályktanir 40. Fiskiþings og framgang þeirra og víkja síðan að starfsemi einstakra deilda félagsins. Haldnir voru sex fundir í aðalstjórn félags- ins, auk margra funda framkvæmdastjórnar og fjölmörg mál rædd og er- indi afgreidd. Verður komið inn á mörg þeirra hér á eftir. Stjórnarmenn og starfsmenn félagsins sátu auk þess marga fundi sem haldnir voru á vegum sjávarútvegsráðuneytisins og annarra ráðuneyta og stofnana og tóku þátt í nefndarstörfum, þar sem óskað var aðildar Fiskifélagsins. Þá sóttu starfsmenn og stjórnarmenn nokkra fundi á erlendum vettvangi, þar sem fjallað var um fiskveiðimál og tæknimál. Að venju voru sóttir fundir fjórðungssambanda og deilda víðsvegar um landið. Ég vík þá fyrst að samþykktum og tillögum 40. Fiskiþings í þeirri röð, sem þær eru birtar í Fiski- þingstíðindum. Lokuð veiðisvæði. I samræmi við þessa ályktun fór stjórn Fiskifé- lagsins þess á leit við sjávarútvegsráðherra og stjórn Hafrannsóknastofnunar, að fram yrði látin fara könnun á stærðardreifingu fisks innan og utan lokuðu svæðanna við norðan- og norðaustanvert landið. í öðru lagi gerði stjórn félagsins tillögu um, að meiri sveigju skyldi gætt við nytjun þeirra svæða SV-lands, sem lokuð hafa verið togveiðum tíma- bundið á vetrarvertíð. Þessi tillaga náði fram að ganga. í þriðja lagi samþykkti stjórnin að fara skyldi fram endurskoðun á fiskveiðilöggjöfinni frá 1976. Sjávarútvegsráðherra skipaði nefnd með aðild Fiskifélagsins til að starfa að endurskoðun lag- anna. Nefnd þessi hefur enn ekki lokið störfum. Álit Hafrannsóknastofnunar um stærðardreif- ingu fisks á lokuðum svæðum var tekið fyrir á tveim stjórnarfundum. Samþykkti stjórnin að leggja til opnun svonefnds Gunnarshólma, svo og Reykja- fjarðarálssvæðisins, fyrir öll veiðarfæri, þó með þeim fyrirvara að sett skyldi sérstakt timabundið línusvæði þar. Við NA-land var mælt með opnun svæðis fyrir allar veiðar innað 20 mílum, nema á vesturhluta svæðisins, þar sem mælt var með sér- stöku línusvæði vissan hluta árs. Rökin fyrir línusvæðum í báðum tilfellum eru einkum þau, að langt er á þau að sækja og miklum vandkvæðum bundið fyrir báta, að leita annað með línu, ef ekki reyndist unnt að koma henni í sjó, þegar á svæðið er komið. Markaðsmál. í þessari þörfu ályktun eru markaðsmálin raun- ar tekin í víðara samhengi við afkomu sjávarút- vegsins og gæði hráefnis og afurða, svo og sam- keppni á erlendum mörkuðum, enda er framleiðsla til útflutnings ekki einangrað fyrirbrigði. Eins og gefur að skilja er stöðugt unnið að markaðskönnun og leit nýrra markaða af ýmsum aðilum, þótt hlutur samtaka framleiðenda sé að sjálfsögðu langstærstur í þeirri starfsemi. Hefur svo verið um árabil. Hið nýjasta í þessu efni er uppbyggingu sölu- og þjónustumiðstöðva á hinum stóra og mikilvæga markaði EBE, bæði í Bret- landi, og á meginlandi Evrópu. Öllum er kunnugt um flugflutning ísaðs fisks og flaka á Bandaríkja- markað og í minna mæli til V-Evrópu. Nú nýlega hefur verið hafinn útflutningur ferskra flaka frá Austfjörðum með skipum. Virð- ist þetta framtak lofa góðu. Þá hafa Þjóðverjar sýnt meiri áhuga en oft áður á reglubundnum kaupum á ferskum fiski frá íslandi á fyrirfram tryggðu lágmarksverði. Ekki hefur enn tekist, þrátt fyrir viðleitni í því efni, að fá fellda niður tolla á saltsíld til EBE-landa. í ályktun 40. Fiskiþings um markaðsmál, er 2 — ÆGIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.