Ægir - 01.01.1983, Side 17
ekki hirt um að kynna sér þann vaxandi vanda,
sem við er að fást vegna óhóflegrar fjölgunar sela.
Birst hafa í fjölmiðlum greinar og viðtöl í æsi-
fréttastíl, þar sem höfðað hefur verið á miður
smekklegan hátt til tilfinninga fólks og reynt að
láta líta svo út að þessir aðilar hafi beitt sér fyrir og
hvatt til óhæfuverka.
Því skal lýst yfir hér, að stjórn Fiskifélagsins
hefur stutt og mun styðja við bakið á þeim aðilum,
sem að þessu starfi standa til nauðsynlegra aðgerða
til að halda selastofninum innan hóflegra marka.
Er þá heldur ekki dregið i efa, að þeir muni hag-
nýta sér þá reynslu, sem fengist hefur, með starfi á
þessu ári og sníða af vankanta, sem kunna að hafa
komið i ljós.
Það sem helst má benda á, er nauðsyn frekari
nýtingar þeirra afurða, sem til falla við selveiðar.
Vísast í þessu efni til greina, sem birtar eru um
reynsluna á Nýfundnalandi og í Noregi. í þessum
greinum kemur þó fram, að við ýmsa erfiðleika er
nð etja fyrir okkur.“
Eg vil þó bæta við varnaðarorðum. Það er þeim
mönnum sem að þessu standa til hróss, að þeir
hafa lítt sinnt því að hrinda þeim árásum, sem á þá
°g störf þeirra hafa verið gerðar, í fjölmiðlum.
Astæðan er fyrst og fremst sú að mál þessi eru við-
kvæm og óhófleg opinber umfjöllun þeirra geta
skaðað hagsmuni okkar.
Að mínu mati eiga viðbrögð okkar og umfjöllun
að vera með sama hætti.
Öryggismál.
A síðasta Fiskiþingi voru samþykktar ítarlegar
nlyktanir um öryggismál, eins og oftast áður. Ég
reyni að fara fljótt yfir sögu, enda mun Hjálmar
Bárðarson, siglingamálastjóri flytja erindi á þing-
mu um öryggismál.
Tillaga þingsins um sjósetningarbúnað Sigmund
Jóhannssonar er komin í framkvæmd. Ekki hefur
þótt fært að lögbinda yfirbyggða björgunarbáta
Um borð í flutningaskipum. Samkvæmt umsögn
s'ghngamálastjóra útilokar fyrirkomulag margra
skipa þessa aðgerð.
Skyndiskoðun á öryggisbúnaði skipa er i fram-
kvæmd m.a. i góðri samvinnu við Landhelgisgæsl-
Ur>a, sem kemur athugasemdum og ábendingum til
Siglingamálastofnunar.
Búið er að gera nýja kvikmynd um gúmmíbjörg-
unarbáta. Samkvæmt upplýsingum Siglingamála-
síofnunar hefur verið falast eftir þessari mynd er-
lendis frá. Skipaskoðunarmenn um land allt hafa
fyrirmæli um að hvetja skipstjórnarmenn til að
kynna áhöfnum búnað gúmmíbjörgunarbáta á
þeim stöðum, þar sem bátarnir eru skoðaðir.
Ekki hefur enn verið lögskipað, að hástokkur og
þak á stýrishúsi smábáta verði málað appelsínugul-
um lit. Við skoðun er hinsvegar eigendum báta
bent á þetta sjálfsagða öryggisatriði.
Um renniloka í netarennur skuttogara er það að
segja, að fyrir 1. nóv. s.l. átti að vera búið að tíma-
setja breytingar í þessu efni á þeim skipum, sem
ekki voru þá komin með þennan búnað. Unnið er
að þvi að fá ljós, sem nægilega góð og örugg þykja
og hægt er að viðurkenna til notkunar á björg-
unarbeltum.
40. Fiskiþing skoraði á siglingamálastjóra að
birta opinberlega efni reglugerða Alþjóðasiglinga-
málastofnunar. Nú mun hafa fengist fé til að þýða
þessar reglugerðir á íslensku og birta þær. Er þess
að vænta, að þær komi út innan tiðar. Ný reglu-
gerð hefur verið sett um neyðarsenda í gúmbjörg-
unarbáta.
Samkvæmt upplýsingum starfsmanna Pósts og
síma, er þeim ekki kunnugt um staðarákvörðunar-
kerfi á hlustunartíðni 121,5 og 243 MHz. Hinsveg-
ar er í athugun kerfi á 400 megariðum i sambandi
við veðurtungl. Hlustun á neyðartíðnum 121.5 og
243 MHz getur farið fram um slík gerfitungl.
Þá skoraði Fiskiþing á Alþingi að fella niður
gjöld af tækjum og búnaði sem nauðsynlegur er
fyrir björgunar- og hjálparsveitir. Heimildargrein
um niðurfellingu eða endurgreiðslu aðflutnings- og
sölugjalda fjarskiptatækja í þessum tilgangi er að
finna í fjárlagafrumvarpi því, sem nú liggur fyrir
Alþingi.
Um vitanefnd er það að segja, að hún var skipuð
á s.l. vetri og hefur þegar haldið allmarga fundi.
Grynningar og sker við Maríuhlið um 10 sjómíl-
ur vestan við Dyrhólaey hafa verið færð inná sum-
ar útgáfur sjókorta.
Úreldingar- og Aldurslagasjóður.
Starfandi hefur verið nefnd um nokkurra mán-
aða skeið við endurskoðun laga um Úreldingar- og
Aldurslagasjóði. Fiskifélagið á aðild að nefndinni.
Gerð hafa verið drög að nýjum lögum um starf-
semi þessarra sjóða.
Endurnýjun fiskiskipastólsins.
A siðasta Fiskiþingi lágu fyrir tillögur starfs-
ÆGIR — 5