Ægir - 01.01.1983, Side 29
verði ekki heimilaðar innan 12 sjómílna úti af
Vestfjörðum.
b) Að þau undanþáguákvæði, sem veitt verða
frá þessari meginreglu vegna minni báta, verði
ekki bundin í lögum, heldur stjórnað með reglu-
gerðarákvæðum.
c) Að Kögurhólfinu verði breytt þannig, að
norðurhliðin verði færð upp á Loran C línu
62450.
d) Að karfahólf úti af Breiðafirði verði lagt
niður.
e) Að á tímabilinu frá 1. okt. til 15. marz verði
sett sérstakt línusvæði i Reykjafjarðarál.
4. Að tilvísan 39. fjórðungsþings Fiskideilda í
Norðlendingafjórðungi:
a) Að við endurskoðun og breytingar á land-
helgislöggjöfinni verði ákvæði um veiðisvæði
ekki lögbundin, heldur stjórnað með reglu-
gerðarákvæðum. Aukin verði nýting hafsvæða
nær landi fyrir allar gerðir íslenska fiskiskipa-
flotans. Aðeins verði samið við útlendinga um
gagnkvæmar veiðiheimildir og inn í þá samn-
inga tekin ákvæði um samkeppni aðila á
fiskmörkuðum.
b) Að línubátar hafi forgangsrétt að veiðisvæði
á Rifsbakka.
c) Að ekki verði teknar upp veiðar með 5,5
tommu möskva.
d) Að Eyjafirði verði ekki skipt milli einstakra
báta eða veiðarfæra.
5. Að tilvísan 42. fjórðungsþings Fiskideilda í
Austfirðingafjórðungi:
a) Að við endurskoðun laga og reglugerða um
veiðar- og veiðitilhögun í fiskveiðilögsögunni
verði NA svæðið lokað fyrir öllum togveiðum
ut að 20 sjómílum frá grunnlinupunktum og
einnig verði svæðið frá réttvísandi NA frá
Langanesi að línu réttvisandi A frá Glettinga-
nesi lokað fyrir öllum togveiðum út að 12 míl-
um frá grunnlinupunktum.
b) Að vakin er athygli á því vandamáli sem upp
kemur með nýtingu landhelginnar, hvað varðar
aukna möguleika minni togbáta með tilkomu
tveggja báta botnvörpu.
6. Að tilvísan aðalfundar Fiskideildar Vestmanna-
eyja:
a) Að lína D4 verði opnuð fyrir togara frá 15.
maí í stað 1. ágúst til 31. desember og lína C3
verði einnig opnuð frá 15. maí í stað 15. sept. til
áramóta.
b) Að lína C6 miðist við fjöruborð i stað við-
miðunarpunkta allt að 19°40 V, en viðmiðun á
Lundadrang falli út. Lína þessi á við bátastærð
frá 26 m að 39 m.
c) Að skipum yfir 26 m að lengd, sé óheimilt að
veiða með botnvörpu innan línu D3 og D2 milli
20°V og 20°40 V allt árið.
d) Að ekki verði slakað á aðgerðum frá því sem
nú er, til verndunar ungviðinu í fiskstofnum
okkar.
7. Eftirlitsmönnum verði fjölgað og Landhelgis-
gæslunni verði fengin hlutdeild í auknu eftirliti
með veiðum.
Sett verði tímamörk á svæðalokanir, sem settar
eru með reglugerðum, t. d. 1-2 mánuðir.
Skýrsla fiskimálastjóra
41. Fiskiþing færir fiskimálastjóra og starfsfólki
Fiskifélags íslands þakkir fyrir störf þess.
í ítarlegri skýrslu fiskimálastjóra kemur fram
hversu umfangsmikil störf í þágu sjávarútvegsins
eru unnin hjá Fiskifélaginu, og með þátttöku fiski-
málastjóra á fjölmörgum sviðum sjávarútvegs-
mála.
Öryggismál
41. Fiskiþing ítrekar, að þær samþykktir, sem
gerðar hafa verið á fiskiþingum og i deildum Fiski-
félagsins, um öryggismál, og ekki hafa komist í
framkvæmd, verði teknar til afgreiðslu svo fljótt
sem kostur er.
Greinargerð:
Fiskiþing harmar það sinnuleysi, sem oft verður
vart i öryggismálum, og leggur áherzlu á, að
áhöfnum skipa sé kynntur sá öryggisbúnaður sem
um borð er og kennd sé notkun hans. Skipstjóri
beri ábyrgð á framkvæmd þessari.
Selveiðar og hringormavandamál
41. Fiskiþing þakkar störf selormanefndar, og
telur áframhaldandi starf hennar nauðsynlegt. Til
þess að halda selastofninum í skefjun, er brýnt, að
áfram verði haldið verðlaunaveitingum fyrir hvern
veiddan sel. Fiskiþing leggur áherslu á, að með
lagafrumvarpi því, sem nú er í undirbúningi um
selveiðar, verði gert kleift að vinna að fækkun sela
við strendur landsins.
ÆGIR — 17