Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1983, Page 32

Ægir - 01.01.1983, Page 32
Gæði fiskafla og afurða /. 41. Fiskiþing bendir á að forsvarsmenn íslenskrar fisksölu erlendis hafa lýst því yfir að fiskgæðum okkar hafi hrakað að undanförnu og á sama tíma hafi gæði aukist á fiski frá samkeppnis- þjóðunum. Þingið varar við neikvæðri umræðu um þessi atriði og telur að fjölmiðlar hafi á margan hátt blásið málið út. Þannig að til skaða kunni að vera. Þingið leggur þunga áherslu á, að mál þessi verði tekin föstum tökum og markvisst unnið að aukn- um gæðum á fiskafla og fiskafurðum, svo íslend- ingar verði áfram i fremstu röð, hvað gæði fisk- afurða snertir. II. Til þess að stuðla að framförum hvað varðar gæði fiskafla og afurða hans, leggur 41. Fiskiþing eftirfarandi til: 1. Við verðlagningu á ferskum fiski verði þess ávallt gætt, að besti fiskurinn sé verðlagður það hátt umfram fisk i lægri gæðaflokkum, að það hvetji verulega til góðrar meðferðar og öflunar á úrvals hráefni, enda verði tekið fullt tillit til markaðsverða. 2. Tryggt verði að þar sem matsstöðvar eru starfandi, séu ferskfiskmatsmenn ekki jafn- framt rekstraraðilar stöðvanna. 3. Til þess að auka samræmingu í mati á ferskum fiski, verði þeirri skipan komið á fót, að tvisvar til þrisvar sinnum á ári verði- ferskfiskmatsmenn i hverjum landsfjórðungi kallaðir saman og látnir hver í sínu lagi meta sama fiskinn, sem til staðar er. Yfirferskfisk- matsmenn í hverjum fjórðungi sjái um fram- kvæmd þessa. 4. Hvatt er til þess að yfirmatsmenn komi oftar, óvænt og ótilkvaddir, til eftirlits í mats- og vinnslustöðvar. 5. Stjórn Fiskifélagsins taki til athugunar á hvern veg sé hægt að tengja saman aflaverð- mæti og aflamagn, þegar gefnar eru upp aflatölur einstakra skipa. Margt bendir til að frásagnir um aflamagn, þar sem verðmæti aflans er haft í fyrirrúmi muni virka til hvatningar um betri meðferð á fiski. 6. Framleiðendur og samtök þeirra hafi á hendi allt framleiðslueftirlit og mat á afurðum til útflutnings. Ríkismatið skal þó ávallt í tæka tíð yfirfara vöruna áður en hún er flutt úr landi, og gefa endanlegt vottorð um að gæði standist, þegar það er áskilið í sölusamn- ingum. 7. Stefnt verði að því að miða mat á sjávar- afurðum til útflutnings, við þær kröfur sem kaupendur vörunnar gera hverju sinni. 8. Þess sé ávallt gætt við veitingu framleiðslu- leyfa til vinnslustöðva, að viðkomandi hafi tryggt sér og viðskiptaskipum sínum nægjan- legan ís til kælingar hráefnis. 9. Auka þarf alla fræðslu um meðferð á fiski og afurðum hans og halda uppi hvatningu, sem höfðar til hvers og eins aðila er málið varðar. Bent er á þá miklu möguleika, sem myndbönd gefa í þessu efni. 10. Stuðlað verði að því að aðilar sem sannan- lega skara framúr, um meðferð fisks og um- hirðu fiskafurða og framleiðslutækja, hvort sem er um að ræða til sjós eða lands, hljóti viðurkenningu fyrir störf sín. 11. Stjórn Fiskifélagsins taki þátt í og fylgist með endurskoðun laga og relgugerðar um Framleiðslueftirlit sjávarafurða, sem nú er á dagskrá og sjávarútvegsráðherra hefur beitt sér fyrir. Fræðslu- og tæknimál 41. Fiskiþing felur stjórn Fiskifélags íslands að beita sér fyrir: 1. Að nemendur í sjávarútvegsgreinum og sjó- mannaskólanum, fái aðgang og afnot af skipum þar sem hægt verður að kynnast starfinu við raunverulegar aðstæður. 2. Að komið verði á framhaldsdeildum (öldunga- deildum) við Stýrimannaskólana, fyrir skip- stjórnarmenn, sem vilja afla sér meiri réttinda. 3. Að haldin verði vélstjóranámskeið á sem flest- um stöðum þar sem næg þátttaka fæst. 4. Óheillaþróun hefur átt sér stað með undan- þáguveitingar til handa yfirmönnum skipa. Þar sem stéttarfélög eru til staðar fái þau undan- þágubeiðnir til meðferðar. 5. Þá fagnar Fiskiþing því að nefnd sú, sem fjallar um réttindabreytingar yfirmanna mun skila tillögum sínum á næstu dögum. 6. Að haldið verði áfram athugunum á að koma hér upp tilraunatanki fyrir veiðarfæri. 7. Að Fiskifélag íslands aðstoði einstaklinga og hópa til að fá aðgang að námskeiðum og að framkvæma eigin tilraunir við nýja tilrauna- 20 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.