Ægir - 01.01.1983, Blaðsíða 35
miðin á þessum tíma árs, eða um 6 tímar að jafn-
aði. Það sem gerir það kleift að landa verulegu
magni af kolmunna daglega, er að ný aðferð hefur
verið tekin upp við löndunina úr ,,Gullfinni“, sem
felst í því, að sjó er dælt niður i lest skipsins, sem
hólfuð er niður í vatnsþétta tanka, og þrýstir sjór-
■nn kolmunnanum úr tanknum í víða slöngu sem
tengd er við síðu skipsins. Löndunin tekur mjög
stuttan tíma og enginn hreyfir nú við kolmunn-
anum frá því honum er dælt um borð og þar til
hann er kominn í löndunarker á bryggjunni. Með
þessari nýju aðferð, þ.e. að þrýstidæla kolmunn-
anum í land, fæst verulega betra hráefni en ef
aðrar löndunaraðferðir eru notaðar.
I ,,Bakkafrost“ fiskiðjunni eru alls sjö fram-
leiðslubrautir fyrir kolmunna, þar af eru fimm
brautir ætlaðar til marningsframleiðslu og mun
um 2/3 framleiðslunnar verða marningur. Áætlað
er að mögulegt verði að vinna úr 70 tonnum af kol-
munna á sólarhring og verði þá unnið á tveimur
vöktum, samtals í 19 klukkustundir. Hjá fiskiðj-
unni munu um 50 manns vinna að kolmunnafram-
leiðslunni. Gert er ráð fyrir að hægt verði að gera
út á kolmunnaveiðar frá Færeyjum og landa
ferskum kolmunna í sjö mánuði á ári, og ef að
jafnaði fiskast um 2.000 tonn á mánuði gera menn
hjá ,,Bakkafrosti“ sér vonir um að dæmið gangi
upp.
Verðið á kolmunnanum til skips í Færeyjum er
nú um ísl. kr. 3.30, en auk þess verður greitt um 40
aurar á kg í styrk til skipsins, upp að 10.000 tonn-
um, þá fellur þessi styrkur niður. Sem stendur fást
um ísl. kr. 15.50 fyrir kg af kolmunnamarningi og
22.60 fyrir kg af flökum. Ekki dugir þetta verð
fiskvinnslunni til að arðvænlegt sé að nýta kol-
munnann til manneldis og er því sem stendur veitt-
ur allriflegur styrkur til þessarar framleiðslu af
opinberu fé i Færeyjum. Allt frá því fyrst var farið
að vinna kolmunnaafurðir til manneldis hefur þró-
unin í markaðsmálum verið sú, að verðið hefur
stöðugt farið hækkandi og eru sölumöguleikar á
þessari afurð taldir vera allgóðir, en sala á fisk-
fingrum og fiskkökum úr kolmunnamarningi
hefur farið ört vaxandi.
í Færeyjum er fylgst grannt með hvernig fram-
leiðslan hjá ,,Bakkafrosti“ gengur og sem stendur
liggja fyrir umsóknir frá nokkrum öðrum fiskiðju-
verum um opinber lán til að hefja nauðsynlegar til-
færingar og tækjakaup til kolmunnaframleiðsl-
unnar.
Heimild: Færeyska blaðið ,,Sosialurinn“
B.H.
Löndun iir,,Gullfinni“. Sjónum dæll (l. v.) og þegar tankurinn fyllisl þrýstisl kolmunninn gegnutn slönguna (t.h.), sem
sengur út uin síóu skipsins og i löndunarker.
ÆGIR — 23