Ægir - 01.01.1983, Blaðsíða 39
lestarrýmisins sem nú stendur ónotaður á kol-
munnaveiðunum og ætlaður er fyrir loðnu- eða
sildarafla, verði síðar notaður til framleiðslu á
meltu úr kolmunnaúrgangi. Sem stendur eru ytri
aðstæður ekki hagstæðar til meltuframleiðslunnar
ura borð, sem m.a. fæli það í sér að landa þyrfti
■neltunni í Danmörku, þar sem enginn markaður
fyrir hana í Bretlandi enn sem komið er, en verð
á meltunni er ekki það hátt að slíkt sé talið borga
sig.
Lagt úr höfn
Lagt var úr höfn þann 23. október s.l. og hófust
veiðarnar þann 30. sama mánaðar. Smávægilegar
tafir urðu vegna byrjunarerfiðleika, en í heild má
segja að öll tæki og vinnsla hafi strax komið út eins
°g til var ætlast. Lítið sem ekkert fannst af kol-
munna fyrsta hálfa mánuðinn og fór sá tími að
mestu forgörðum. í þessum fyrsta túr voru miklar
frátafir vegna stöðugrar brælu og varð að halda
Pokinn á síðunni. Um 45 tonna afli.
skipinu til og slóga allan timann, þegar veiðarnar
sjálfar stóðu ekki yfir, svo vinnslan gæti gengið
snurðulaust fyrir sig. Veiðisvæðið var aðallega um
70 sjómílur í austur til aust-suð-austurs frá Akra-
bergi í Færeyjum, á þetta 300 til 500 faðma dýpi,
en kolmunninn þéttir sig í dagsbirtunni á 170 til
220 faðma dýpi, og veiðist þar einvörðungu. Alls
urðu veiðidagarnir 27 í túrnum og var áætlað að
aflinn upp úr sjó hafi verið um 830 tonn af
kolmunna, eða að jafnaði 31 tonn á dag. Af
þessum afla fór nokkuð forgörðum og eins var
landað smáslatta í bræðslu í Færeyjum. Yfirleitt
var aðeins hægt að ná einu holi á sólarhring þar
sem birtutíminn er stuttur á þessum árstíma og
gildir 'þá að vera á réttum stað á réttum tima til að
finna þær lóðningar sem til þarf að ná þokkalegu
holi.
Frá því lagt var upp frá Hafnarfirði og þar til
landað var i Hull þann 14. desember, liðu því rúm-
ar 7 vikur, sem er of langur timi til að þessar veiðar
skili hagnaði, eða geri þær eftirsóknarverðar, en
bæði verður að gæta þess að þetta er fyrsti túr
,,Eldborgar“ og þvi nokkrar tafir þar af leiðandi
þó allt gengi framar vonum, og svo hins, sem vó
langþyngst í þessum túr, að stöðugar ógæftir og
allt upp í fárviðri voru á þessum slóðum í haust.
Sem dæmi um ótíðina má geta þess, að fyrr hefur
túr ekki misheppnast hjá ,,Giljanesinu“, hinum
stóra verksmiðjutogara Færeyinga og kenndu þeir
það ótíðinni. Landað var eftir þennan túr 220
tonnum af flökum, sem seldust fyrir £126.416, eða
Önnur framleiðslulínan um borð, samstœða af flökunarvél t.h.
og roðflettingarvél t.v.
ÆGIR — 27