Ægir - 01.01.1983, Blaðsíða 67
og verða tekin hér nokkur dæmi um mun fyrir og
eftir botnhreinsun (línurit I).
Dœmi 1: Snúningshraði skrúfu 222 sn/mín.
Við 13.0 hn hraða er oliunotkunin 283 1/klst
eftir botnhreinsun en fyrir hreinsun 410 1/klst,
þ.e 44.9% aukning.
Við 14.5 hn hraða er olíunotkunin 378 1/klst
eftir botnhreinsun, en fyrir hreinsun 538 1/klst,
þ.e. 42,3% aukning.
Dœmi 2: Snúningshraði skrúfu 192 sn/mín.
Við 12.0 hn hraða er olíunotkunin 207 I/klst
eftir botnhreinsun, en fyrir hreinsun 317 1/klst,
þ-e. 53,1% aukning.
Dæmi 3: Snúningshraði skrúfu 160 sn/mín.
Við 10.5 hn hraða er olíunotkunin 141 1/klst
eftir botnhreinsun, en fyrir hreinsun 205 1/klst,
þ.e. 45.4% aukning.
1 framangreindum dæmum er aukning olíunotk-
unar á bilinu 42-53% á ganghraðasviðinu
10.5-14.5 hn.
I stað þess að bera saman olíunotkun við fastan
ganghraða má einnig bera saman ganghraða við
fasta olíunotkun.
Dæmi 4: Snúningshraði skrúfu 222 sn/mín.
Ef stillt er inn á 350 1/klst olíunotkun fæst
12.00 hn ganghraði fyrir botnhreinsun, en 14.10
hn eftir hreinsun, þ.e. 2.1 hn ganghraðamissir.
Ef stillt er inn á 500 1/klst olíunotkun fæst
14.10 hn ganghraði fyrir botnhreinsun, en 16.05
hn eftir hreinsun, þ.e. 1.95 hn ganghraðamissir.
Dæmi 5; Snúningshraði skrúfu 192 sn/mín.
Ef stillt er inn á 250 1/klst olíunotkun fæst
10.55 hn ganghraði fyrir botnhreinsun, en 12.95
hn eftir hreinsun, þ.e. 2.40 hn ganghraðamissir.
Aðstæður við mælingu:
Til að hægt sé að bera saman mælingar fyrir og
eftir botnhreinsun þurfa ákveðnir meginþættir að
vera samsvarandi og má þar einkum nefna:
a) Hleðsla og lega skips (særými, djúprista,
stafnhalli og slagsiða).
b) Sjó- og veðurástand (sjólag, vindhraði,
vindátt, hitastig, straumur o.fl.).
c) Mælitæki og mæliaðferð.
/
l/klat ; VÍKINGUR AK-IQQ • f í
ÍOO / /
fftir botn voin F '
A S 7?
450 y
/ t /
400 V 1) —
/ ■
'f
350 @ * / /
T / / /
/ /
.
/ &
250 X
f7*
j V hT)
9'
BQwi/mln
150 JT
Línurit I: Linurit sem sýnir ferla fyrir og eftir botnhreinsun.
a) Eftirfarandi niðurstöður fengust í legumæl-
mgum. fyrri mæl. Seinni mæl.
Djúprista miðskips
(mótuð) ...3.70 m 3.70 m
Særými ...1328 t 1328 t
Stafnhalli (aftur) ... ... .1.40 m 1.36 m
Slagsíða .... 0.7 °b.b. 0.4 °s.b.
Eins og sést af framangreindu er djúprista mið-
skips og særými sama í báðum mælingum, en
óverulegur munur í stafnhalla og slagsíðu. í mæl-
ingu fyrir botnhreinsun reyndist stafnhalli um 4 cm
meiri og slagsíða 0.3° meiri.
b) Aðstæður við mælingu, hvað viðkemur sjó- og
veðurástandi, voru eftirfarandi:
Fyrri mæling Seinni mæling
Vindur .............. ANA 2-3 ANA 0-1
Sjógangur (stig)..... 1-2 0
Lofthiti............. + 10.4°C + 7.2°C
Sjávarhiti .......... +8.6°C + 10.4°C
ÆGIR — 55