Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1983, Page 51

Ægir - 01.07.1983, Page 51
Allar diesel vélar geta skilaö því sem af þeim er krafist í einhvern tíma ÞESSI ER EINNIG GERÐ TIL ÞESS AÐ ENDAST! Við hjá SWDiesel höfum það stöðuga markmið að uppfylla kröfur viðskiptamanna okkar um fyrirferðarminni dieselvelar, þar sem fyrirferðarminni vél getur þýtt minna skip með hlutfallslega stærra lestarrými. Fraeðilega séð þýðir þetta aukinn olíusparnað og lægri rekstrarkostnað. Reynslan hefur þó sýnt, að léttari hönnun dieselvélarinnar getur valdið erfiðleikum og áhættan getur orðið of mikil, sérstaklega þegar vélin á að ganga undir fullu álagi langti'mum saman. Gangöryggi vélarinnar er teflt í tvísýnu og þar með rckstraröryggi skipsins. Olfusparnaðurinn, sem átti að vinnast á pappírnum, bregst þegar á hólminn er komið. Við höfum langa reynslu í smíði dieselvéla fyrir skip og okkur er Ijós sú regla, að dieselvél á alltaf að hafa eitthvað til vara. Þessvegna smíðurn við hana með ,,skrokk”, sem tryggir hámarks rekstraröryggi við mesta álag langtímum saman. Þetta gildir um alla hluta vélarinnar i smáatriðum. Látið ykkur samt ekki detta í hug að fyrir þetta þurfi að greiða með hlutfallslega meiri olíueyðslu. Þvert á móti. Lítið t.d. á vélar okkar af gerðunum SW/F 240, SW 280, TM 410 og TM 620. Lág eldsneytisolíueyðsla þeirra hefur sannast við hin erfiðustu skilyrði. Hægt er að nota svartolíur allt að 700 Cst. Minni olíueyðsla, minna viðhald, minni viðgerðir og minni þörf fyrir varahluti. Þetta er það sem sparast vegna þess hvernig SWDiesel vélarnar eru hannaðar. Við köllum þetta ,,heildar dicsel sparnað”. Ef þú villt vita hvernig þú getur hagnast á þessu, þá getum við sýnt þér ýmsar áhugaverðar tölur. Dráttarbátur í eigu Nieuwe Rotterdamse Sleepdienst í höfninni í Rottcrdam. Einn af 7 samskonar bátum, scm allir eru með tvær Voith-Schneider skrúfur, hvor knúin af SWDiesel, gerð 6F 240, 1500 hö., 1000 sn/mín. SWDIISEL Stork-Werkspoor Diesel B.V. ADALSKRIFSTOFA: Oostcnburgcrmiddenstraat 62, P.O. Box 4196, 1009 AD Amsterdam, Holland, sími (020) 52 03 911, tclex 14395. VERKSMIDJA í ZWOLLE: Assendorperlure 5, P.O. Box 608, 8000 AP ZWOLLE, Holland, sími (038) 97 17 17, telex 42116. UMBOD Á ÍSLANDI: Óskar Pétursson, Vesturgata 26b, 101 Reykjavík. Sfmi 21905, telex 2204.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.