Ægir - 01.12.1985, Side 9
I byrjun apríl var svo bætt 5%
við úthlutaðan kvóta af þorski.
Af 665 fiskiskipum völdu 465
skip aflamark, 185 sóknarmark.
15 skip fengu enga úthlutun.
Afkomu og markaðsmál
Aðalforsenda afkomu skipa
hlýtur alltaf að verða hvað við-
komandi getur og fær að draga
upp mikinn afla og hvaðfæstfyrir
hann. Afkoma veiðanna verður
betri íáren ífyrra og kemurþartil
m.a. aukin loðnuveiði, fjölgun
verksmiðjuskipa, gámaútflutn-
ingur o.fl. Af eðlilegum ástæðum
eru margir kvíðnir að eins dauði
hljótist af annars brauði hvað
varðar hráefnisöflun fiskvinnslu-
stöðva og atvinnu starfsfólks
þeirra. í dag býr vinnslan við
ýmsan vanda. Þar yfirgnæfir sér-
staklega hið óleysta skreiðarmál.
Á síðasta Fiskiþingi ræddi ég
nokkuð um markaðsmál og verð-
lag sjávarvöru á helstu mörkuð-
um okkar. Ég sé ekki ástæðu að
þessu sinni, til að ræða um ein-
stakar afurðir eins og þá var gert.
Sem heild hefur staða okkar á
mörkuðunum styrkst. Nokkur
hækkun hefur orðið á afurðum í
erlendri mynt, má þar til nefna
frystan og saltaðan fisk. Um
þessar mundirertaliðað um skort
sé að ræða á frystum fiski á
Bandaríkjamarkað og saltfisk-
markað Miðjarðarhafsríkja.
Rækja hefur selst hraðar og hefur
nú styrkari stöðu á markaði en
fyrir ári síðan. Nú síðustu mánuði
hefur orðið söluaukning á hörpu-
diski. Kemur þar til minna fram-
boð af „Floridaskel" en verið
hefir.
Bjartsýnir menn telja að hinn
tröppótti mjöl- og lýsismarkaður
lýti betur út nú en undanfarna
mánuði. Stóraukin síldveiði hefur
valdið nokkurri lækkun á verði
saltsíldar og óvissu um markaðs-
horfur okkar á frystri síld. Mark-
aðsstöðu skreiðar læt ég liggja
milli hluta, þar hefur lítið breyst.
Ekki verður gengið framhjá
stóraukinni sölu á ísuðum fiski til
Bretlands, þegar rætt er um mark-
aðsmál. Ætla má að í ár verði seld
um 60 þús. tonn af ísuðum fiski
erlendis frá veiðiskipum og flutt
út í gámum. Hér er um verulega
aukningu að ræða eða um tvö-
földun á gámafiski frá fyrra ári.
All nokkrar verðhækkanir hafa
orðið á fiski bæði í Bretlandi og
Þýskalandi, má þar til nefna að
meðalverð á ísuðum fiski lönd-
uðum frá togurum var jan.-okt.
1984 £ 0.66 pr. kg. en 1985 £
0.74 pr. kg. eða 12% hækkun. í
Þýskalandi var meðalverð jan.-
okt. 1984 Dm 2.01 pr. kg. en
1985 2.38 eða 18% hækkun.
Sala á ísuðum fiski fluttum út í
gámum hefur verið í stöðugri
aukningu frá árinu 1982. Hér
hefur brúast bil sem skapast hefur
á milli afkasta veiða og vinnslu í
landi og skip því nýst betur. Ég tel
það á miklum misskilningi byggt
að amast við útflutningi þessum,
sem er tvímælalaust þjóðhags-
lega hagkvæmur.
Flutningar þessir eiga eftir að
taka breytingum. Eðlilegt tel ég
að hið fyrsta verði athugað um
hagkvæmustu gerðir gáma, ein-
angrun þeirra og ytri lit, sem
skiptir verulegu máli.
Þá þarf að huga að geymsluað-
stöðu gáma í erlendum höfnum,
þegar bíða þarf söludags.
Eins og áður hefur misgengi
gjaldmiðla haft all nokkur áhrif á
verð markaðsvöru í ísl. kr., eftir
því í hvaða mynt varan er seld.
Röskun hefur orðið á stöðu
U.S.A. dollars á heimsmarkaðn-
um en verðlag verulegs hluta
afurða okkar miðast við þá mynt.
Kemur nú til baka kuldakast eftir
það hlýindaskeið sem við nutum
meðan dollar var á uppleið á
gjaldeyrismarkaði. Á verðhækk-
unartíma dollars, kom „kulda-
skeið", sem ég svo nefni, yfir Ev-
rópumyntir, sem kom niður á af-
urðaverði í ísl. krónum fyrir þær
vörur, sem á þá markaði voru
seldar, en innflutningurafturnaut
í hagkvæmara innflutningsverði.
Frá ársbyrjun þessa árs til okt-
óberloka hefurdollar hækkað um
tæp 2%, £ um 28% og Dm
23.5%. Ekki verður hjá því kom-
ist að svona sveiflur hafi nokkur
áhrif í efnahagslífi þjóðarinnar,
bæði hvað snertir markaðssetn-
ingu vöru og innflutningsverðlag,
en verðlag innanlands mun hafa
hækkað um nær 30% á sama
tímabili.
Þrátt fyrir þá erfiðleika sem
þessi vandi færir okkur má álykta
að mun betra ástand sé á mörkuð-
um fyrir sjávarvöru okkar en var
fyrir ári síðan.
Fiskeldi
Á þessu ári hefur mjög mikið
verið leitað til Fiskifélags íslands
vegna nýrra fiskeldisfyrirtækja,
sem nú er verið að stofna víða um
land. Fjárfesting í fiskeldi hefur
aldrei verið meiri en á árinu
1985. Þannig er samanlögð fjár-
festing tíu síðastliðinna ára minni
enfjárfestingáárinu 1985. Vissu-
lega hefði verið æskilegra að
þróunin hefði orðið jafnari, og
reynsla og þekking byggst upp
smám saman, en með þeim hætti
hefði rekstur fiskeldisfyrirtækj-
anna orðið öruggari. Vonandi
tekst þó vel til við uppbyggingu
þessara nýju fiskeldisfyrirtækja,
þannig að hægt verði að tala um
fiskeldi sem „alvöru" atvinnu-
grein hér á landi sem annarsstað-
ar.
Meðal nýjunga hjá fiskræktar-
deild niá nefna, að ákveðið hefur
verið að gera tilraunir með lúðu-
eldi í samvinnu við Fiskeldi
Grindavíkur. Nokkrum smálúð-
um hefur verið komið í eldisker,
ÆGIR-679