Ægir - 01.12.1985, Síða 11
Eins og öllum er kunnugt hefur
heiðursfélagi Fiskifélags íslands
Lúðvík Kristjánsson, rithöfundur,
fræðimaður og fyrrverandi rit-
stjóri tímaritsins Ægis unnið að
ritum bókarinnar íslenskir sjávar-
hættir um margra ára skeið.
Gagnasöfnun hefur hann unnið
að í áratugi. Fiskifélagið, ásamt
samtökum innan sjávarútvegsins
hafa stutt við bakið á Lúðvíki við
útgáfu og gerð þessa stórmerka
brautryðjandastarfs. Um þessar
mundir er að koma út 4. bindið,
og á næsta ári er fyrirhugað að 5.
og seinasta bindið komi út. Öll
íslenska þjóðin stendur í mikilli
þakkarsku Id við Lúðvík fyrir þetta
gagnmerka ritverk.
Tæknideild
Á starfsárinu var lokið við síð-
ustu mælingar í samnorræna
verkefninu á vegum Nordforskog
unnið frekar úr ýmsum niður-
stöðum sem fyrir lágu. Til við-
bótar fyrri greinum í Ægi um
niðurstöður í Nordforsk-verkefn-
inu, hafa birsttværgreinarogsíð-
ustu greinarnar munu birtast í
næstu tölublöðum Ægis. Stefnt er
að heildarútgáfu allra greina í
handbókarformi í lokin.
Þótt langt sé um liðið síðan
Tæknideild hóf mælingar á
brennsluolíunotkun og ýmsum
álagsmælingum um borð í fiski-
skipum, sem urðu hvað umfangs-
mestar með þátttöku í Nordforsk-
verkefninu, er enn talsverð starf-
semi á þessu sviði. Þóttfleststærri
skipin séu nú búin olíurennslis-
mælum, berast beiðnir til deild-
arinnar um mælingar á orkuhag-
kvæmni skipa. Reynt hefurverið
að sinna þessum beiðnum eftir
bestu getu, enda eðlilegt að sá
tækjabúnaður sem deildin hefur
komið sér upp nýtist í stað þess að
rykfalla.
Á liðnu sumri hófust rann-
sóknir á áhrifum bætiefnis fyrir
brennsluolíu með tilliti til olíu-
sparnaðar, og voru gerðar sam-
anburðarmælingar í Akraborg.
Endanlegar niðurstöður liggja
ekki fyrir, en fyrstu niðurstöður
gáfu ekki til kynna olíusparnað.
Ekki verðurskilið við umfjöllun
um starfsemi á orkusviði án þess
að geta um bækling um orku-
notkun og orkusparnað, sem
væntanlega verður kynnturá yfir-
standandi Fiskiþingi. Bæklingur
þessi er gefinn út af Tæknideild í
samvinnu við Orkusparnaðar-
nefnd sjávarútvegsráðuneytisins
og er ætlað það hlutverk að gefa
ákveðna yfirsýn yfir ýmsa þætti
orkunotkunar og orkusparnaðar
við fiskveiðar.
Vegna endurnýjunar á tölvu
Fiskifélagsins hafa starfsmenn
veitt umtalsverða aðstoð, bæði
vegna uppsetningar svo og vegna
breytinga á hugbúnaði. Þá hefur
deildin veitt véltæknilega aðstoð
vegna rannsókna- og skólabáts,
sem hefur verið í smíðum.
Afgreidd voru 20 erindi fyrir
Fiskveiðasjóð á starfsárinu vegna
breytinga á skipum og búnaði og
ýmissa úttekta, en auk þess bárust
deildinni ýmisönnurerindi, fyrir-
spurnir og beiðnir um ráðgjöf.
Að beiðni sjávarútvegsráðu-
neytisinstókTæknideildin saman
bráðabirgðaskýrslu um kúfisk-
veiðar með vatnsþrýstiplóg. Gert
er ráð fyrir frekari aðstoð deildar-
innar varðandi fyrirhugaðar til-
raunaveiðar.
Nú er hafin samantekt hand-
bókar um fiskileitartæki, sem á að
bæta úr brýnni þörf. Þar sem
mikil tæknibylting hefur orðið á
því 20 ára tímabili sem liðið er
frá útgáfu fyrstu handbókarinnar
um fiskileitartæki, hefur þótt
tímabært að endursemja og auka
við fyrri útgáfu.
Yfirlit um starfsemi hagdeildar
Frá síðasta Fiskiþingi hafa
orðið nokkrar breytingar á mann-
afla hagdeildar. Tveir starfs-
menn, þær Þórdís Anna Kristjáns-
dóttir og Mjöll Gunnarsdóttir létu
af störfum í september síðast
liðnum. í stöðu Þórdísar hefur
verið ráðin Kristján Halldórsson,
kerfisfræðingur. Enn hefur ekki
verið ráðið í stöðu þá, sem Mjöll
gengdi. Þessar mannabreytingar
ÆGIR-681