Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1985, Síða 16

Ægir - 01.12.1985, Síða 16
Bjarni Grímsson: Afkoma sjávarútvegsins Forseti, góðir þingfulItrúar og gestir. Sjávarútvegurinn hefur verið forsenda byggðar hér á íslandi nú síðustu aldir. Er þetta að breyt- ast? Er það rétt að útgerð og fisk- vinnsla sé baggi á þjóðinni? Ég varpa þessu hér fram vegna þess að stöðugt er hertur sá áróður sem haldinn er gegn þessum atvinnu- vegi og það er stækkandi sá hópur sem trúir því að við sem vinnum í atvinnugreininni séum óhæfir og getum leitað beint til ríkis og sveita um leið og eitthvað bjátar á. En hvernig stendur á að svo er komið og hvað er til úr- bóta? Undanfarin ár hefur hagur útgerðar og fiskvinnslu verið mjög erfiður og á hverju ári hefur verið samþykkt á Fiskiþingi og öðrum samkomum okkar að allt sé að fara á hausinn. En nú stöndum við hér í dag og ekki erum við enn farnir á hausinn. Því vaknar sú grunsemd hjá þeim sem ekki veit betur, að þessir atvinnurekendur séu bara að væla og enginn er búmaður nema hann kunni að barma sér. Okkur sem starfa í atvinnu- greininni er hinsvegar Ijóst, að á undanförnum árum hafa ákveðin atriði gert okkur kleift að búa við hallarekstur. Þar má fyrst nefna þá óðaverðbólgu sem ríkti hér þar til fyrir tveim árum. Eftir það hafa lántökur haldið hlutum gang- andi. Þannig er staðan í dag ekki glæsileg. Langvarandi hallarekstur hefur rýrt eigið fé fyrirtækjanna gerir þau vanmáttug til samkeppni og átaka á þeim mörkuðum sem við seljum okkar fiskafurðir á. Hallarekstur fiskvinnslunnar gerir það að verkum að hún greiðir ekki það hráefnisverð til útgerðar sem hún ætti að gera og getur ekki keppt við aðrar atvinnugreinar um vinnuafl þ.e. hefur ekki bolmagn til að greiða fólki sambærileg laun og t.d. þjónustugreinar. Hvers- vegna hefur þjónustan möguleika á að greiða hærri laun en fiskvinnslan? Jú hér er grundvallarmunur á. Þjónustan getur fært sínar kostn- aðarhækkanir út í verðlagið en fiskvinnslan hefur ekki mögu- leika á þessu, því hún keppir á frjálsum markaði þar sem hún getur ekki haft áhrif á verð. En hverjireru möguleikar fisk- vinnslunnar til bættrar afkomu? Þeir eru í höfuðatriðum tveir. Sá fyrri er gengið, sá síðari er innri hagræðingogsparnaðurírekstri. Lítum nú á fyrri kostinn. Nú síðari ár hefur atvinnurekstrinum verið haldið gangandi með lánum og það erlendum. Því er það ekki fýsilegur kostur að fella gengið til að auka tekjur fisk- vinnslunnar, auk þess sem kjara- samningar eru bundnir rauðum strikum sem takmarkar mjög þann ávinning sem fiskvinnslan hefur af gengisfellingu. Hins vegar ber á það að líta að við gengisfellingu þá aukast ekki okkar skuldir erlendis, við skuldum það sama í $ og £ fyrir og eftir fellingu gengis, og það sem meira er við fáum sama verð fyrir okkar afurðir í $ og £ og áður, þar með eigum við sömu möguleika og áður að greiða þessi erlendu lán með erlendum gjaldmiðli. Hins vegar hækka okkar tekjur í krónum og við eigum betri möguleika á að greiða hærri laun og fiskverð. Þá segja margir, þarna fór hann nú einfalda leið sér í hag. Hann gleymdi að aðföngin hækka líka, veiðarfæri skipa, varahlutir véla o.fl. sem er keypt í erlendri mynt. Allt er þetta rétt, en þessir hlutir hafa takmarkað vægi í okkar afkomu þó þeir vissulega skipti máli. Það er aftur á móti önnur saga hvort verslun og þjónusta eru ekki orðin svo offjárfest í glæsihöllum sem byggð eru fyrir erlent lánsfé að þeir þurfi allan ábata fiskvinnslunnar af gengis- fellingu til að standa við greiðslu sinna erlendu lána. Það er því fyrir óábyrga fjár- málastjórn banka og stjórnvalda sem lána erlent fé til byggingar stórmarkaða og til að halda uppi innlendri þjónustu ríkisins. Þessar greinar hafa ekki mögu- leika á að afla gjaldeyris og eiga því ekki að fá erlend lán. Eru það ekki þessir aðilar sem í dag blása 686-ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.