Ægir - 01.01.1989, Blaðsíða 22
14
ÆGIR
1/89
Allar þær deildir, sem eru
skrifaðar undir ramma háskóla
sjávarútvegs og siglinga, snerta
beint meginstoðir íslensks at-
vinnulífs og hafa sumar gert lengi
innan Háskóla íslands.
Rannsóknastofur HÍ hafa t.d.
unnið að lífefnavinnslu úr sjávar-
fangi og notkun lífhvata (ensíma) í
fiskiðnaði til vinnslu á eggja-
hvftuefnum úr fiskúrgangi, slógi,
svilum o.fl., notkun lýsis gegn
kransæðastíflu o.s.frv. Raunvís-
indastofnun, reiknistofnun o.fl.
hafa unnið að sérstöku sjávarút-
vegslíkani og á sviði öryggismála
er unnið að stórmerkum athugun-
um og tilraunum með sjálfvirkri
tilkynningaskyldu íslenskra skipa.
Allt yröi þetta þó markvissara
innan Háskóla sjávarútvegs og
siglinga.
í sambandi við sérstaka þróun-
ardeild sjávarútvegsskóla má t.d.
benda á stórmerkilegt verkefni
sem Frakkar og Spánverjar hafa
komið á fót eða hönnun á fiski-
skipi 10. áratugarins. Þetta er
þáttur í EUREKA-áætlun sem
íslendingar urðu aðilar að hinn
30. júní 1986, en hún felur m. a.
í sér samstarf um tækniþróun og
opnun markaða. Dr. Vilhjálmur
Lúðvíksson, framkvæmdastjóri
Rannsóknaráðs ríkisins, kynnti
þetta í merkilegri grein í Morgun-
blaðinu hinn 13. nóvember 1986.
Markmið þessa skipaverkefnis er
m.a. á sviði fiskileitartækni,
veiðitækni, vinnslu um borð, um
geymslu, hleðslu og löndun á
fiski, orkusparnað, siglinga- og
fjarskiptatækni, öryggi skipa og
áhafna, aðbúnað og umhverfi.
Að öllum þessum þáttum væri
unnt að vinna á þróunardeild
sjávarútvegsháskóla. Án þess að
hafa hér um fleiri orð koma í
hugann fyrirtæki eins og SIMRAD
með fiski leitartæki, RAPP með
kraftblakkir, VIKING og RFD
með gúmmíbjörgunarbáta og
öryggistæki svo að einhver séu
nefnd.
Öflug fyrirtæki á þessum
sviðum hefðu átt að geta haslað
sér völl hér á landi áður en þau
voru stofnuð í viðkomandi lönd-
um, en nokkur þeirra voru byggð
upp með hliðsjón af reynslu
íslenskra sjómanna.
Auðvitað mundi slíkur háskóli
sjávarútvegs og rannsóknastofn-
anir hafa enn nánara og beinna
samband við sjávarútveginn og
sjómenn en verið hefur og enn
fremur tengsl við fiskiðnað og
þjónustufyrirtæki. Skólinn gæti
eflt mjög allan iðnað sem þjónar
sjávarútveginum bæði þann
iðnað sem fyrir er, t.d. veiðar-
færagerð, hlerasmíði, tölvur í
fiskiðnaði og auk þess stuðlað að
stofnun nýrra fyrirtækja.