Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1989, Síða 18

Ægir - 01.02.1989, Síða 18
70 ÆGIR 2/89 Blika hf. Bræðurnir Ottó og Matt- hías Jakobssynir og Ægir Þorvalds- son og konur þeirra. Hófu þau útgerð á 20 tonna eikarbáti, Blika EA 12. Hóf félagið fiskverkun í nýju húsi sem það reisti 1972 við Ránarbraut. Fyrir 2 árum tók Bliki svo í notkun nýtt hús á athafna- svæði sínu og er það tvílyft að hálfu. Þar er skrifstofa fyrirtækis- ins, viðgerðaraðstaða eða verk- stæði fyrir báta og vélar, og þjón- ustuverkstæði fyrir net, víra o.þ.h. auk vinnusalar. Samtals eru húsin um 1.700 ferm. að grunnfleti. Frá upphafi eru Blikarnir orðnir 4. Auk þess á fyrirtækið Bjarma EA 13, 51 lesta stálbát er það keypti 1986. Bliki nr. 2 var 50 lesta eik- arbátur. 1980 var keyptur 3. Blikinn, 148 lesta stálbátur. Var hann yfirbyggður 1985. í október s.l. kom svo til heima- hafnar frystitogskipið Bliki, sem er 216 lestir. Eldri stálbáturinn var seldur og tekinn upp í fyrir hann annar, Arnar ÁR 55, sem síðan var settur upp í kaupin á nýja togskip- inu, sem smíðað er í Svíþjóð. Þeir Blikamenn hafa verkað mest í salt og skreið. Á seinni árum er það nær eingöngu skreið á Ítalíumarkað sem verkuð hefur verið á Dalvík. Þykir skreiðin sem verkuð er norðanlands mun betri vara en víðast annars staðar frá. Kannski á veðráttan einhvern hlut í því. Á s.l. ári var tekið í notkun í fisk- húsi Blika hf. svokallað sprautu- söltunarkerfi við verkun á saltfiski. Sparar það vinnu og þykir gefa mun betri vöru. Fáir munu vera með þessa nýjung, enn sem komið er hérlendis. Frystiskip félagsins er fyrst og fremst gert til að frysta rækju, karfa og grálúðu. Hefur það verið a rækjuveiðum síðan það kom til landsins og stærri rækjan seld til Japans. Eftir áramótin hefur veiði verið afar dræm, enda tíðarfarið með eindæmum rysjótt. Ottó Jakobsson, sem er fram- kvæmdastjóri Blika hf., er ásamt félögum sfnum, áhugamaður um að koma á útflutningi sjávarafurða beint frá Norðurlandi. Er í deigl' unni að Fiskmiðlun Norðurlandsa Dalvík taki þetta að sér og mein- ingin er að t'ara af stað sem allna fyrst. Ítalíuskreið var t.a.m. flutt út frá Norðurlandi fyrir um 400 millj- króna á s.l. ári. Bliki hf. á stóran hlut í Sæplasú hf. og einnig í fiskeldisfyrirtaekina Ölni sem er með strand- og kvía- eldi á staðnum. Horfa menn með bjartsýni til fiskeldimálanna °S hafa aukið reksturinn ár frá ári, °S stefna hærra. Á árinu 1988 voru fluttar út t'rá Ölni ht'. um 30 lestir af ferskum laxi beint á Ameríkumarkað áætlað er að á þessu ári verð1 slátrað rúmum 100 tonnum af la*1 hjá fyrirtækinu. Hjá Ölni hf. erU um 3 heilsársstörf. Hjá Blika voru á s.l. ári hengu Úr vinnslusal Sæplasts.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.