Ægir - 01.09.1992, Blaðsíða 54
494
ÆGIR
9/92
Önnur af tveimur setustofum skipsins.
þessu rými eru fremst matvælageymslur, skipt í ó-
kælda geymslu, kæli og frysti, en aftast fyrir miðju er
tvískipt setustofa með tengsl við borðsal.
Bátaþilfar: Á bátaþilfari er fremst s.b.-megin íbúð
skipstjóra, skipt í setustofu, svefnklefa og snyrtingu;
og til hliðar við hana tveir eins manns klefar. Þar fyr-
ir aftan eru þrír eins manns klefar í hvorri síðu, en
fyrir miðju er tækjaklefi, saunaklefi ásamt sturtu, og
aftast fyrir miðju er eins manns klefi. í brú er salern-
isklefi.
íbúðir eru einangraðar með steinull og klæddar
með plasthúðuðum plötum.
Vinnuþilfar (fiskvinnsluþilfar):
Framan við skutrennu eru tvær vökvaknúnar
fiskilúgur, sem veita aðgang að tvískiptri fiskmót-
töku, um 70 m3 að stærð, aftast í fiskvinnslurými. í
efri brún skutrennu er vökvaknúin skutrennuloka.
Fiskmóttaka er einangruð og botn og síður klæddar
með ryðfríu stáli, og lokað vatnsþétt að framan með
þili, sem á eru tvær vökvaknúnar rennilúgur til los-
unar.
Fiskvinnslukerfi er hannað af Slippstöðinni hf.,
sem einnig annaðist smíði á færiböndum, körum
o.þ.h. og niðursetningu á öllum búnaði.
Blóðgun, flutningur: Úr móttöku er hleypt 'n'^
lárátt færiband, þversum framan við móttöku,
flytur yfir í b.b.-síðu og þaðan með tröppubandi ^
á blóðgunarband aftan við blóðgunarkör, sem
fimm talsins. Eftir blóðgun tekur við færiband, un
blóðgunarbandi, sem flytur að tröppuband s.b-'n'1
in, og frá því inn á færiband (yfir blóðgunarköru
með stillanlegum úttökum fyrir stærðarflokkun-
í skipinu eru þrjár megin vinnslurásir, þ.e.:
- Flakavinnsla (bolfiskur)
- Flakavinnsla (karfi)
- Heilfrysting (karfi, grálúða)
í stórum dráttum er ferli einstakra vinnslurása elt
farandi: aft,
Flakavinnsla, bolfiskur: Vökvaknúinn búnaður _
ast í blóðgunarkörum hleypir aflanum inn a ‘
band, sem flytur að lyftubandi s.b.-megin og P‘ ^
inn á færiband að slægingar- og hausunarvélum
handaðgerð (fyrir stóran fiskh Eftir slægin8u _
hausun flyst aflinn í tvískipt þvottakar, b.b.-meo^f
og þaðan með færibandi að safnkari og frá
fram mötun í flökunar- og roðflettivél. Fra
flytjast flökin að safnkari og snyrtiborði og ba a