Ægir - 01.09.1992, Blaðsíða 50
490
ÆGIR
9/92
Fremst s.b.-megin er dælurými, þá netageymsla,
dælurými, og aftast ísgeymsla, ísvélarklefi og skor-
steins- og stigahús. B.b.-megin eru íbúðir aftur fyrir
miðju, dælurými þar fyrir aftan og aftast skorsteins-
og stigahús. Vörpurenna kemur í framhaldi af skut-
rennu og greinist hún í fjórar bobbingarennur, sem
liggja í gangi fram að stefni, þannig að unnt er að
hafa tvær vörpur undirslegnar og tilbúnar til veiða.
Yfir afturbrún skutrennu eru toggálgar, en yfir fram-
brún skutrennu er pokamastur, sem gengur niður í
síðuhús aftast á efra þilfari. Toggálgapallur er yfir
skutrennu.
Neðra hvalbaksþiIfar (bakkaþiIfar) er heilt frá stefni
aftur að miðju, en þar greinist það í tvennt og liggur
meðfram báðum síðum aftur að pokamastri s.b.-
megin, en b.b.-megin aftur að dælurými. Á neðra
hvalbaksþiIfari (bakkaþiIfari) er lokuð yfirbygging frá
stefni aftur að skipsmiðju, en í henni eru íbúðir á-
samt geymslu fremst.
Aftast á efra hvalbaksþilfari (bátaþilfari) er íbúðar-
hæð með andveltigeymi fremst, og brú yfir íbúðar-
hæð. Framan við yfirbyggingu á bátaþilfari er hús
fyrir akkerisvindu með uppgangi. Á brúarþaki er rat-
sjár- og Ijósamastur, og aftan við brú er mastur fyrir
hífingablakkir.
Vélabúnaður:
Aðalvél skipsins er frá Wártsilá Vasa, átta strokka
fjórgengisvél með forþjöppu og eftirkælingu, sem
tengist tveggja hraða niðurfærslugír, með innbygg^rl
kúplingu, og skiptiskrúfubúnaði frá Wártsilá - Wi^1
mann. I skipinu er búnaður til svartolíubrennsl11'
seigja allt að 600 sek R1.
Tæknilegar upplýsingar
(aðalvél með skrúfubúnaði):
Gerð vélar...........
Afköst...............
Snúningshraði........
Gerð niðurfærslugírs..
Niðurgírun...........
Gerð skrúfubúnaðar..
Efni í skrúfu........
Blaðafjöldi..........
Þvermál..............
Snúningshraðar.......
Skrúfuhringur........
8R32D
3000 KW (4076 hö)
750 sn/mín
SCV 840/2-P550
5.789:1/7.068:1
9PR4-12DS3
NiAl-brons
4
3800 mm
129.5/106.1 sn/mín
Wichmann
Séð fram eftir togþilfari. Ljósmyndir með grein: Tæknideild / JS.