Ægir - 01.09.1992, Blaðsíða 26
466
ÆGIR
9/92
Sóknarstýring
Innan sjávarútvegsins á sóknar-
stýringin nokkru fylgi að fagna.
Vafalaust vegna þess að þar er
fetað inn á troðnar slóðir. Öllum
má þó vera Ijóst að sá troðningur
var illfær og fyrirsjáanlegt að
hann var ófær ef lengra hefði ver-
ið haldið. Síðustu mánuðina hafa
samt komið fram uppástungur um
upptöku veiðistjórnar í formi stýr-
ingu sóknar og að tilraun skuli
gerð með sóknarstýringu við að-
stæður þar sem engir möguleikar
eru á að beina veiðiflotanum í
vannýtta fiskistofna. Skrapdagatil-
raunin skal því endurtekin með
ennþá meiri takmörkunum á end-
urnýjun skipa en áður.
í grein í 9. tbl. Ægis 1989, „Al-
mennar reglur við stjórn fisk-
veiða", var fjallað ítarlega um
möguleika til að stjórna fiskveið-
um með sóknartakmörkunum
samfara fjárfestingahöftum og
komist að þeirri niðurstöðu að
sóknarstýring með fjárfestinga-
marki væri mun lakari kostur en
þágildandi aflamarkskerfi. har var
m.a. bent á atriði sem nokkuð
hefur verið til umræðu upp á
síðkastið að verðgildi aflamarks-
ins flyttist yfir á skipin (sóknar-
getu), en leiddar að því líkur að
verðgildi skipanna minnkaði við
slíka stjórn fiskveiða andstætt við
verðgildi aflamarksins sem mun
vaxa við þá aðferð sem notuð
hefur verið við stjórn fiskveiða.
Þetta þýðir einfaldlega að eiginfé
sjávarútvegsfyrirtækja mun rýrna
við sóknarstýringu vegna aukins
kostnaðar við veiðarnar.
Regiur um endurnýjun
fiskískipa
Arið 1989 voru reglur um end-
urnýjun fiskiskipa ekki svo mjög í
umræðunni sem nú og þessvegna
lítið fjallað um þær í fyrrnefndri
grein. Undanfarin ár hafa veriö i
gildi reglur um endurnýjun fiski-
skipa, þar sem í fyrstu voru hörnl-
ur á stækkun flotans, en reglurnar
voru hertar og nú gildir að þega'
skip eru endurnýjuð þá rna
rúmtala nýs skips ekki vera meiri
en rúmtala skipa sem úrelt eru a
móti.
Reglur sem hefta þróun fiski-
skipaflota þegar hann veiðir undii'
aflamarki eru einskis virði fra
sjónarmiði þjóðhagslegrar hag'
kvæmni og verða helst til að að-
búnaður og öryggi sjómanna
versna. Það getur vart farið saman
að nota aðferð til aó stjórna fisk'
veiðum sem nothæf er vegna
innri afla stjórnkerfisins sem
koma í veg fyrir offjárfestingu 1
fiskveiðum og vera samtímis mer
reglur sem takmarka endurnýju11
fiskiskipa. Myndun eignarréttar a
hlutdeild í aflamarki var til Þes5
gerð að handhafar eignarréttarins
Það er gríðarlegur munur á aðstöðu og aðbúnaði áhafna á nýjum togara og vertíðarbáti sjöunda áratugarins•